© 2025 Tix Miðasala
Grafarvogskirkja
•
13. nóvember
Miðaverð frá
7.500 kr.
Stórtónleikar Fjörgynjar – stuðningur við BUGL
Þetta er í 21 skiptið sem Lionsklúbburinn Fjörgyn stendur fyrir tónleikum til styrktar verkefna líknarsjóðs Fjörgynjar. Fyrstu styrktartónleikar Fjörgynjar voru haldnir árið 2003 og á hverju ári síðan hefur fjöldi landskunnra tónlistarmanna ávallt gefið vinnu sína til verkefnisins.
Nú í ár munu eftirfarandi tónlistarfólk koma fram:
Baggalútur
Emmsjé Gauti
Gissur Páll Gissurarson
Greta Salóme
Guðrún Árný Karlsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir
KK
Páll Rósinkranz
Þór Breiðfjörð
Undirleikari: Lára Bryndís Eggertsdóttir
Kynnir er hinn landsþekkti Felix Bergsson
Fjörgyn leggur ríka áherslu á að beita sér fyrir velferð barna og unglinga. Í gegnum tíðina hefur klúbburinn stutt margvísleg verkefni, fyrir samtals um 190 milljónir á núvirði. M.a. hefur Fjörgyn fyrst og fremst stutt við Barnaspítala Hringsins og Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL). Fjölmargir aðrir aðilar hafa einnig notið stuðnings frá klúbbnum, m.a. Ungmennafélagið Fjölnir, Ljósið, Skátafélagið Vogabúar, Stuðlar, Sólheimar, SPOEX, Umhyggja, Styrktarfélagið Broskallar (broskallar.is) o.fl.
Frá stofnun klúbbsins hefur Fjörgyn einnig gefið veglegar matargjafir eða innkaupakort til þurfandi fjölskyldna í Grafarvogi í samstarfi við Grafarvogkirkju og Íslensku Kristskirkjuna.
Án stuðnings fjölmargra aðila þar á meðal ykkar sem sækið tónleikana væri þetta ekki mögulegt.