Rising Stars | Álfheiður Erla og Kunal Lahiry - Lafði Lazarus

Harpa

10. maí

Miðaverð frá

5.000 kr.

Lafði Lazarus er yfirskrift lokatónleika Rising Stars í Hörpu þar sem fram koma sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir og píanóleikarinn Kunal Lahiry. 

Ljóð Sylviu Plath, _Lafði Lazarus, s_em þýska tónskáldið Aribert Reimann samdi magnað einsöngsverk sitt við árið 1992, myndar þráð í gegnum efnisskrána sem teygir sig yfir margar aldir og hverfist um stef á borð við frelsi og jafnrétti. Á meðal tónverka er Íslandsfrumflutningur á verkinu Náðarstef sem María Huld Markan Sigfúsdóttir samdi sérstaklega fyrir Álfheiði og Kunal, við ljóð þriggja skálda úr ólíkum áttum.    

Undanfarna mánuði hafa Álfheiður Erla og Kunal komið fram í mörgum af virtustu tónleikahúsum Evrópu svo sem í Elbphilharmonie í Hamborg, Concertgebouw í Amsterdam og Parísarfílharmóníunni. Nú er röðin komin að Hörpu.

EFNISSKRÁ

Henry Purcell (1559 - 1695)  / John Dryden

Music for a While (úr Ödupusi, konungi Þebu), Z 583/2 (úts. W. Bergmann / M. Tippett)

Aribert Reimann (1936 - 2024) / Sylvia Plath

I have done it again (úr Lady Lazarus)

Franz Schubert (1727 - 1810) / Josephine von Munk-Holzmeister

Blondel zu Marien, D 626 

Carol Anne McGowan (1983) / Mary Elizabeth Frye

Do not stand at my grave and weep

Aribert Reimann / Sylvia Plath

The nose, the eye pits, the full set of teeth? (úr Lady Lazarus)

Benjamin Britten (1913 - 1976) / Arthur Rimbaud

Les illuminations op. 18: VI. Interlude

Les illuminations op. 18: VII. Being Beauteous 

María Huld Markan Sigfúsdóttir (1980) 

Náðarstef (2025)

I. Nóttin er mér náðardjúp (Fríða Ísberg)

II. Síðasta ljóðið (Halina Poswiatowska / ísl. þýðing: Maó Alheimsdóttir)

III. Fljúgandi ljóð (Mosab Abu Toha / ísl. þýðing: Móheiður Hlíf Geirslaugsdóttir)

Pantað af Hörpu, Philharmonie Luxemburg, ECHO

Aribert Reimann (1936 - 2024) / Sylvia Plath

The first time it happened I was ten (úr Lady Lazarus)

Christian Jost (1963) / Franz Kafka

Der explodierende Kopf

Luciano Berio (1925 - 2003)

Wasserklavier (úr 6 Encores)

Shawn E. Okpebholo (1981) 

Oh, Freedom (úr Songs in Flight)

Aribert Reimann (1936 - 2024) / Sylvia Plath

There Is a charge (úr Lady Lazarus)

Henry Purcell (1559 - 1695) / Ókunnur höfundur

By beauteous softness (úr Now does the glorious day appear, Z 332 'Birthday Ode for Queen Mary II') 

-

Um Náðarstef Maríu Huldar Markan Sigfúsdóttur

Náðarstef (2025) er í þremur köflum við ljóð þriggja skálda sem koma frá ólíkum heimshlutum: Fríðu Ísberg frá Íslandi, Halinu Poswiatowska frá Póllandi og Mosab Abu Toha frá Palestínu. Þótt ljóðin hafi verið ort á þremur þjóðtungum hljóma þau hér öll á íslensku; ljóð Halinu Poswiatowska í íslenskri þýðingu Maó Alheimsdóttur og ljóð Mosab Abu Toha í íslenskri þýðingu Móheiðar Hlífar Geirlaugsdóttur.

Orðið Náðarstef býr yfir margræðni sem fangar undirliggjandi þræði ljóðanna, frelsisþrá, sorg, leitina að hinu yfirskilvitlega. Þættirnir þrír endurspegla ólíkt andrúmsloft ljóðanna en tengjast á sama tíma í gegnum sameiginleg stef og minni. Þannig verður lagaflokkurinn bæði stefnumót ólíkra radda og eitt, samfellt bergmál.

-

Álfheiður Erla Guðmundsdóttir stundaði söngnám við Söngskóla Sigurðar Demetz og í Hanns Eisler tónlistarháskólanum í Berlín, þaðan sem hún lauk bakkalár- og meistaranámi. Hún þreytti frumraun sína í Staatsoper Berlin árið 2019 í hlutverki Mjallhvítar í óperunni Schneewittchen eftir Wolfgang Mitterer og var boðið að taka þátt í SongStudio, meistaranámskeiði á vegum söngkonunnar Renée Fleming í Carnegie Hall í New York sama ár. Hún er einnig Britten-Pears Young Artist, hefur tekið þátt í Academy Orsay-Royaumont í Frakklandi og hreppti tvenn verðlaun í alþjóðlegu Haydn söngkeppninni í Austurríki. Álfheiður Erla hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2021 sem söngkona ársins í flokknum sígild og samtímatónlist og var valin í 16 manna úrslit BBC Cardiff söngkeppninnar sama ár.

Álfheiður Erla var fastráðin við Theater Basel í Sviss frá 2021. Þar hefur hún farið með ýmis hlutverk, meðal annars Gildu í Rigoletto eftir Verdi, sópranhlutverkið í Mattheusarpassíunni eftir Bach og Einstein on the Beach eftir Philip Glass og engilinn í St. François d'Assise eftir Messiaen. Árið 2022 sá Álfheiður um listræna stjórn og söng á viðburðinum Apparition ásamt píanóleikaranum Kunal Lahiry í Eldborgarsal Hörpu, þar sem tón-, dans- og sjónlistir tvinnuðust saman en viðburðurinn var tilnefndur sem tónlistarviðburður ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2023.

Árið 2023 kom út platan Poems hjá Deutsche Grammophon, sem inniheldur verk sem Álfheiður söng og samdi ásamt tónskáldinu Viktori Orra Árnasyni við ljóð ýmissa íslenskra ljóðskálda. Álfheiður mun syngja með Sinfóníuhljómsveit Íslands í 8. sinfóníu Gústafs Mahlers vorið 2026, á tónleikum sem fram fara á Listahátíð í Reykjavík. Þá fer hún einnig með titilhlutverkið í óperu Unsuk Chin, Alice, í Vínarborg í vetur. 

Álfheiður er tilnefnd af Hörpu og Philharmonie Luxembourg sem Rising Stars listamaður. Hún er fyrst íslenskra listamanna til að taka þátt í þessu verkefni.

-

Píanóleikarinn Kunal Lahiry hefur komið fram á tónleikum víðs vegar um heim, í tónleikasölum svo sem Carnegie Hall, Elbphilharmonie, Kennedy Center og Wigmore Hall og vakið mikla athygli fyrir framúrskarandi píanóleik og frjótt verkefnaval. Á árunum 2021 – 2023 var hann unglistamaður BBC (BBC New Generation Artist) og listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar Queer Song Festival í Bristol sem var útvarpað hjá Radio 3. Hann hefur lagt mikla rækt við nýsköpun og pantað og frumflutt tónverk eftir tónskáld svo sem Nico Muhly, Viktor Orra Árnason, Errollynn Wallen og Lyra Pramuk.

Lahiry starfar þvert á tónlistarstíla og listgreinar, með myndlistarfólki og kvikmyndagerðarfólki og hefur haft frumkvæði að stórum listrænum verkefnum. Um þessar mundir vinnur hann að umfangsmiklu verki þar sem tekist er á við Vetrarferð Schuberts út frá sjónarhóli transmanneskju þar sem til verða 24 ný lög og ljóð eftir hinsegin tón- og ljóðskáld.

Á meðal náins samstarfsfólks Lahiry eru mezzósópransöngkonurnar Fleur Barron og Coline Dutilleul, sópransöngkonurnar Axelle Fanyo og Álfheiður Erla Guðmundsdóttir og sellóleikarinn Sophie Kauer. Hann hefur leikið inn á plötur með Axelle Fanyo og Sophie Kauer sem komið hafa út hjá Deutsche Grammophone og sendi ásamt Coline Dutilleul frá sér plötuna Licht in der Nacht þar sem þau flytja ljóðasöngva eftir Schönberg, Debussy, Ölmu Mahler, Lily Boulanger og fleiri.

-

Rising Stars er verkefni á vegum ECHO, Samtaka evrópskra tónleikahúsa. Rising Stars-verkefnið er margþætt; það veitir ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á að koma fram í frábærum tónlistarhúsum víðs vegar um Evrópu og veitir jafnframt ferskum straumum inn í tónlistarlíf og dagskrá viðkomandi tónlistarhúsa. Verkefnið styður við nýsköpun en þeir hópar og einstaklingar sem valdir eru til þátttöku í Rising Stars panta tónsmíð sem er flutt er á öllum tónleikum viðkomandi. Samhliða tónleikahaldi tekur unga tónlistarfólkið þátt í samfélagslegum tónlistarverkefnum sem lúta að miðlun, kennslu og/eða viðburðahaldi, gjarnan utan hins hefðbundna tónleikasalar en verkefnin eru ákveðin í samstarfi við viðkomandi tónlistarhús.

Um 110 tónleikar fara árlega fram á vegum Rising Stars. Á meðal tónlistarfólks sem komið hefur fram undir merkjum Rising Stars eru fiðluleikararnir Patricia Kopatchinskaja, Renaud Capuçon og Janine Jansen, píanóleikararnir Khatia Buniatishvili og Igor Levit, sellóleikarinn Kian Soltani og strengjakvartettarnir Quarteto Casals og Belcea Quartet.

-

ECHO, samtök evrópskra tónleikahúsa, voru stofnuð árið 1991 en í samtökunum eru nú 23 tónleikahús í 14 Evrópulöndum.  Aðildarhús ECHO styðja hvert annað með því að deila reynslu og þekkingu og koma af stað metnaðarfullum, alþjóðlegum samstarfsverkefnum. Lögð er rík áhersla á tengsl við listafólk, áhorfendur og samfélagið sem og frumsköpun og stuðning við ungt listafólk.

-

RISING STARS TÓNLISTARHÁTÍÐIN Í HÖRPU

9. - 10. maí 2026 í Norðurljósum

Laugardagur, 9. maí kl. 17

Maat saxófónkvartettinn: Blackbird

Laugardagur, 9. maí kl. 20

Giorgi Gigashvili, píanó

Sunnudagur, 10. maí kl. 17

Valérie Fritz, selló: Learn to unlearn

Sunnudagur, 10. maí kl. 20

Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, sópran og Kunal Lahiry, píanó: Lafði Lazarus

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger