ECHO Rising Stars | Álfheiður Erla og Kunal Lahiry - Lafði Lazarus

Harpa

10. maí

Miðaverð frá

5.000 kr.

Lafði Lazarus er yfirskrift lokatónleika ECHO Rising Stars tónleikaraðarinnar í Hörpu þar sem fram koma sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir og píanóleikarinn Kunal Lahiry. Ljóð Sylviu Plath, Lafði Lazarus, sem þýska tónskáldið Aribert Reimann samdi magnað einsöngsverk sitt við árið 1992, myndar þráð í gegnum efnisskrána sem teygir sig yfir margar aldir og hverfist um stef á borð við frelsi og jafnrétti. Á meðal tónverka er Íslandsfrumflutningur á verkinu Náðarstef sem María Huld Markan Sigfúsdóttir samdi sérstaklega fyrir Álfheiði og Kunal, við ljóð þriggja skálda úr ólíkum áttum.

Undanfarna mánuði hafa Álfheiður Erla og Kunal komið fram í mörgum af virtustu tónleikahúsum Evrópu svo sem í Elbphilharmonie í Hamborg, Concertgebouw í Amsterdam og Parísarfílharmóníunni. Nú er röðin komin að Hörpu.

Henry Purcell (1559 - 1695)  / John Dryden
Music for a while (1692)

Aribert Reimann (1936 - 2024) / Sylvia Plath
I Have done it again (úr Lady Lazarus, 1999)

Franz Schubert (1727 - 1810) /  Josephine Freiin von Munk
Blondel zu Marien, D 626 (1818)

Carol Anne McGowan (1983) / Clare Harner
Do not stand by my grave and weep (2023)

Aribert Reimann / Sylvia Plath
The nose, the eye pits, the full set of teeth? (úr Lady Lazarus, 1999)

Benjamin Britten (1913 - 1976) / Arthur Rimbaud
Les illuminations: VI. Interlude
Les illuminations: VII. Being beauteous

María Huld Markan Sigfúsdóttir (1980)
Náðarstef (2025)
I. Nóttin er mér náðardjúp (Fríða Ísberg)
II. Síðasta ljóðið (Halina Poswiatowska)
III. Fljúgandi ljóð (Mosab Abu Toha)
Pantað af Hörpu, Philharmonie Luxemburg, ECHO

Aribert Reimann (1936 - 2024)
The first time it happened I was ten (úr Lady Lazarus)

Christian Jost (1963) / Franz Kafka
Der explodierende Kopf

Luciano Berio (1925 - 2003)
Wasserklavier (úr 6 Encores)

Shawn E. Okpebholo (1981) 
Oh, Freedom (úr Songs in Flight)

Aribert Reimann (1936 - 2024)
There Is a charge (úr Lady Lazarus)

Henry Purcell (1559 - 1695) / Óþekktur höfundur
By beauteous softness

Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, sópran
Kunal Lahiry, píanó

  ----  


Um Náðarstef Maríu Huldar Markan Sigfúsdóttur:

Náðarstef (2025) er í þremur köflum við ljóð þriggja skálda sem koma frá ólíkum heimshlutum: Fríðu Ísberg frá Íslandi, Halinu Poswiatowska frá Póllandi og Mosab Abu Toha frá Palestínu. Þótt ljóðin hafi verið ort á þremur þjóðtungum hljóma þau hér öll á íslensku; ljóð Halinu Poswiatowska í íslenskri þýðingu Maó Alheimsdóttur og ljóð Mosab Abu Toha í íslenskri þýðingu Móheiðar Hlífar Geirlaugsdóttur.

Orðið Náðarstef býr yfir margræðni sem fangar undirliggjandi þræði ljóðanna, frelsisþrá, sorg, leitina að hinu yfirskilvitlega. Þættirnir þrír endurspegla ólíkt andrúmsloft ljóðanna en tengjast á sama tíma í gegnum sameiginleg stef og minni. Þannig verður lagaflokkurinn bæði stefnumót ólíkra radda og eitt, samfellt bergmál.

  ----  

Álfheiður Erla Guðmundsdóttir þreytti frumraun sína á óperusviðinu árið 2019 hjá Staatsoper í Berlín í hlutverki Mjallhvítar í óperu Wolfgang Mitterer. Hún hefur síðan komið víða fram, í óperum og sviðsverkum eftir tónskáld frá ólíkum tímum svo sem Monteverdi, Verdi, Messiaen, Philip Glass og Unsuk Chin. Álfheiður fór síðastliðið haust með titilhlutverkið í óperunni Lísa í Undralandi eftir þá síðastnefndu þegar verkið var sýnt í Theater an der Wien.

Álfheiður gaf ásamt Viktori Orra Árnasyni út plötuna Poems árið 2023 hjá útgáfufyrirtækinu Deutsche Grammophone. Platan hefur að geyma tónlist þeirra við ljóð íslenskra tónskálda. Í framhaldinu kom út kvikmyndin Poems: A Journey Through Icelandic Poetry en Álfheiður Erla og Viktor Orri voru tilnefnd til Norrænu kvikmyndatónlistarverðlaunanna HARPA 2026 fyrir tónlist sína í kvikmyndinni. Árið 2023 kom einnig út hjá Deutsche Grammophone útsetning Álfheiðar á verkinu Intermezzo eftir Brahms sem hún vann ásamt Víkingi Ólafssyni, píanóleikara.

Álfheiður hefur starfað með fjölda hljómsveitarstjóra svo sem Michele Spotti, Laurence Cummings, Ivor Bolton, Alessandro de Marchi, André de Riccer, Daníel Bjarnason og Alondra de la Parra. Hún sá um listræna stjórn og söng á viðburðinum Apparition sem var tilnefndur sem tónlistarviðburður ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2023. Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2021 sem söngkona ársins í flokknum Sígild og samtímatónlist og var tilnefnd sem söngkona ársins í sama flokki árið 2025.

Álfheiður mun syngja með Sinfóníuhljómsveit Íslands í 8. sinfóníu Gústafs Mahlers vorið 2026, á tónleikum sem fram fara á Listahátíð í Reykjavík.

----

Píanóleikarinn Kunal Lahiry hefur komið fram á tónleikum víðs vegar um heim, í tónleikasölum svo sem Carnegie Hall, Elbphilharmonie, Kennedy Center og Wigmore Hall og vakið mikla athygli fyrir framúrskarandi píanóleik og frjótt verkefnaval. Á árunum 2021 – 2023 var hann unglistamaður BBC (BBC New Generation Artist) og listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar Queer Song Festival í Bristol sem var útvarpað hjá Radio 3. 

Lahiry starfar þvert á tónlistarstíla og listgreinar, með myndlistarfólki og kvikmyndagerðarfólki og hefur haft frumkvæði að stórum listrænum verkefnum. Um þessar mundir vinnur hann að umfangsmiklu verki þar sem tekist er á við Vetrarferð Schuberts út frá sjónarhóli transmanneskju þar sem til verða 24 ný lög og ljóð eftir hinsegin tón- og ljóðskáld.

Á meðal náins samstarfsfólks Lahiry eru mezzósópransöngkonurnar Fleur Barron og Coline Dutilleul, sópransöngkonurnar Axelle Fanyo og Álfheiður Erla Guðmundsdóttir og sellóleikarinn Sophie Kauer. Hann hefur leikið inn á plötur með Axelle Fanyo og Sophie Kauer sem komið hafa út hjá Deutsche Grammophone og sendi ásamt Coline Dutilleul frá sér plötuna Licht in der Nacht þar sem þau flytja ljóðasöngva eftir Schönberg, Debussy, Ölmu Mahler, Lily Boulanger og fleiri.

-

  


ECHO Rising Stars er verkefni á vegum ECHO, Samtaka evrópskra tónleikahúsa. ECHO Rising Stars-verkefnið er margþætt; það veitir ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á að koma fram í frábærum tónlistarhúsum víðs vegar um Evrópu og veitir jafnframt ferskum straumum inn í tónlistarlíf og dagskrá viðkomandi tónlistarhúsa. Verkefnið styður við nýsköpun en þeir hópar og einstaklingar sem valdir eru til þátttöku panta tónsmíð sem er flutt er á öllum tónleikum viðkomandi. Samhliða tónleikahaldi tekur unga tónlistarfólkið þátt í samfélagslegum tónlistarverkefnum sem lúta að miðlun, kennslu og/eða viðburðahaldi, gjarnan utan hins hefðbundna tónleikasalar en verkefnin eru ákveðin í samstarfi við viðkomandi tónlistarhús.

Um 110 tónleikar fara árlega fram á vegum ECHO Rising Stars. Á meðal tónlistarfólks sem komið hefur fram undir merkjum Rising Stars eru fiðluleikararnir Patricia Kopatchinskaja, Renaud Capuçon og Janine Jansen, píanóleikararnir Khatia Buniatishvili og Igor Levit, sellóleikarinn Kian Soltani og strengjakvartettarnir Quarteto Casals og Belcea Quartet.

  ECHO, samtök evrópskra tónleikahúsa, voru stofnuð árið 1991 en í samtökunum eru nú 23 tónleikahús í 14 Evrópulöndum.  Aðildarhús ECHO styðja hvert annað með því að deila reynslu og þekkingu og koma af stað metnaðarfullum, alþjóðlegum samstarfsverkefnum. Lögð er rík áhersla á tengsl við listafólk, áhorfendur og samfélagið sem og frumsköpun og stuðning við ungt listafólk.

ECHO RISING STARS Í HÖRPU
9. - 10. maí 2026 í Norðurljósum

Laugardagur, 9. maí kl. 17
Maat saxófónkvartettinn: Blackbird

Laugardagur, 9. maí kl. 18:30 
Listamannaspjall við Maat saxófónkvartettinn 

Laugardagur, 9. maí kl. 20
Giorgi Gigashvili, píanó

Sunnudagur, 10. maí kl. 17
Valérie Fritz, selló: Learn to unlearn

Sunnudagur, 10.maí kl. 18:30
Listamannaspjall við Valerie Fritz, Álfheiði Erlu, Kunal Lahiry

Sunnudagur, 10. maí kl. 20
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, sópran og Kunal Lahiry, píanó: Lady Lazarus

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger