© 2025 Tix Miðasala
Harpa
•
10. maí
Miðaverð frá
5.000 kr.
Lafði Lazarus er yfirskrift lokatónleika Rising Stars tónlistarhátíðarinnar í Hörpu þar sem fram koma sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir og píanóleikarinn Kunal Lahiry.
Ljóð Sylviu Plath, _Lady Lazarus, s_em þýska tónskáldið Aribert Reimann samdi magnað einsöngsverk sitt við árið 1992, myndar þráð í gegnum efnisskrána sem teygir sig yfir margar aldir og hverfist um stef á borð við frelsi og viðnám gegn kúgun. Á meðal tónverka er Íslandsfrumflutningur á verkinu Náðarstef sem María Huld Markan Sigfúsdóttir samdi sérstaklega fyrir Álfheiði og Kunal, við ljóð þriggja skálda úr ólíkum áttum.
Undanfarna mánuði hafa Álfheiður Erla og Kunal komið fram í mörgum af virtustu tónleikahúsum Evrópu svo sem í Elfphilharmonie í Hamborg, Concertgebouw í Amsterdam og Parísarfílharmóníunni. Nú er röðin komin að Hörpu.
EFNISSKRÁ
Henry Purcell (1559 - 1695) / John Dryden
Music for a While (úr Ödupusi, konungi Þebu), Z 583/2 (úts. W. Bergmann / M. Tippett)
Aribert Reimann (1936 - 2024) / Sylvia Plath
I Have Done it Again (úr Lady Lazarus, 1999)
Franz Schubert (1727 - 1810) / Josephine von Munk-Holzmeister
Blondel zu Marien, D 626
Carol Anne McGowan (1983) / Mary Elizabeth Frye
Do Not Stand by My Grave and Weep
Aribert Reimann / Sylvia Plath
The Nose, the Eye Pits, the Full Set of Teeth? (úr Lady Lazarus)
Benjamin Britten (1913 - 1976) / Arthur Rimbaud
Les illuminations op. 18: VI. Interlude
Les illuminations op. 18: VII. Being Beauteous
María Huld Markan Sigfúsdóttir (1980)
Náðarstef (2025)
I. Nóttin er mér náðardjúp (Fríða Ísberg)
II. Síðasta ljóðið (Halina Poswiatowska / ísl. þýðing: Maó Alheimsdóttir)
III. Fljúgandi ljóð (Mosab Abu Toha, ísl. þýðing: Móheiður Hlíf Geirslaugsdóttir)
(pantað af Hörpu, Philharmonie Luxemburg, ECHO)
Aribert Reimann (1936 - 2024)
The First Time it Happened I Was Ten (úr Lady Lazarus)
Christian Jost (1963) / Franz Kafka
Der explodierende Kopf
Luciano Berio (1925 - 2003)
Wasserklavier (úr 6 Encores)
Shawn E. Okpebholo (1981)
Oh, Freedom (úr Songs in Flight)
Aribert Reimann (1936 - 2024)
There Is a Charge (úr Lady Lazarus)
Henry Purcell (1559 - 1695) / Ókunnur höfundur
By beauteous softness (úr Now Does the Glorious Day Appear, Z 332 'Birthday Ode for Queen Mary II')
-
Rising Stars er verkefni á vegum ECHO, Samtaka evrópskra tónleikahúsa. Í samtökunum, sem voru stofnuð árið 1991, eru nú 23 tónleikahús í 14 Evrópulöndum. Aðildarhús ECHO styðja hvert annað með því að deila reynslu og þekkingu og koma af stað metnaðarfullum, alþjóðlegum samstarfsverkefnum. Lögð er rík áhersla á tengsl við listafólk, áhorfendur og samfélagið sem og frumsköpun og stuðning við ungt listafólk.
-
RISING STARS TÓNLISTARHÁTÍÐIN Í HÖRPU
9. - 10. maí 2026 í Norðurljósum
Laugardagur, 9. maí kl. 17
Maat saxófónkvartettinn: Blackbird
Laugardagur, 9. maí kl. 20
Giorgi Gigashvili, píanó
Sunnudagur, 10. maí kl. 17
Valérie Fritz, selló: Learn to unlearn
Sunnudagur, 10. maí kl. 20
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, sópran og Kunal Lahiry, píanó: Lady Lazarus
-