Bríet, blómin og Hannes

Hannesarholt

27. september

Miðaverð frá

3.000 kr.

Dagskráin „Bríet, blómin og Hannes“ verður flutt í Hannesarholti - Hljóðbergi 27. september kl.16 til heiðurs Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindakonu, blaðamanni og ritstjóra Kvennablaðsins á afmælisdegi hennar. Fjallað verður um samstarf Hannesar Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands og Bríetar, ólíka æsku þeirra og kjör og hvernig lífsþræðir þeirra spunnust saman, meðan bæði lifðu. Samstarf þeirra hafði mikil áhrif á þróun kvenréttinda hér á landi. Sá sögulegi sannleikur má ekki gleymast.

En hvaða blóm eru þetta ? - Það færðu að vita ef þú mætir í Hannesarholt þann 27.september. Veitingahúsið er opið frá kl.11.30 og má njóta veitinga á undan viðburði. 

Sýningin er samvinnuverkefni og er styrkt af Leikhúslistakonum 50 plús og Hannesarholti

Dagskráin er um eina klst.

Þáttakendur

Ásdís Skúladóttir leikstjóri, skrifaði handritið ásamt hópnum

Edda Þórarinsdóttir leikkona

Helga E. Jónsdóttir leikkona

Þórey Sigþórsdóttir leikkona

Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger