Tjarnarbíó

13. - 21. febrúar

Miðaverð frá

8.900 kr.

Kammeróperan snýr aftur í Tjarnarbíó með eina af vinsælustu óperum sögunnar í glænýjum búning.

Stolt, ástríða og afbrýðisemi eru rauði þráðurinn í Carmen eftir Georges Bizet.

Don José, ungur skyldurækinn hermaður, verður hugfanginn af hinni heillandi og óútreiknanlegu Carmen.

Svo ákaft brennur hjarta hans af þrá að ekkert getur stöðvað hann í að hlaupast á brott með henni – ekki einu sinni æskuástin Michaëla.

Don José kastar lífi sínu á glæ fyrir spennu og óvissu, en brigðul er kvenna ást.

Escamillo, heimsfrægur nautabani, rennur einnig hýru auga til Carmen – og þá vandast málin.

Sviðið er klárt og rómantísk ástarsagan stefnir óumflýjanlega í hryllilegan harmleik.

Kammeróperan, sem hefur fyrir löngu sannað sig sem einn kraftmesti óperuhópur landsins, heldur nýstárlegri yfirferð sinni á klassíkinni áfram og flytur Carmen á íslensku í nýrri útsetningu sem er einungis ætluð fjórum söngvurum og einum leikara.

Adolf Smári Unnarsson leikstýrir og þýðir textann en hann hefur á síðustu árum vakið mikla athygli fyrir óperuverkefni sín á borð við BRÍM og Ekkert er sorglegra en manneskjan.

Ekki láta þetta einstaka tækifæri framhjá þér fara – sjáðu sígilda tónlistina vakna til lífsins í spennandi, eggjandi og átakamikilli uppfærslu.

Carmen er styrkt af Sviðslistasjóði

Hlutverk

  • Carmen – Kristín Sveinsdóttir

  • Don José – Eggert Reginn Kjartansson

  • Escamillo – Unnsteinn Árnason

  • Michaëla – Jóna G. Kolbrúnardóttir

Hljómsveit

  • Una Sveinbjarnardóttir – fiðla

  • Flemming Valmundsson – harmonika

  • kontrabassi

Listrænt teymi

  • Leikstjórn og þýðing: Adolf Smári Unnarsson

  • Leikmynd og búningar: Andri Hrafn Unnarson

  • Ljós: Fjölnir Gíslason

  • Hár og förðun: Íris Sveinsdóttir

  • Ljósmyndir: Sandijs Rukluks

  • Grafísk hönnun: Gunnar Ólafsson

  • Framleiðsla: Kammeróperan

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger