© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
12. apríl
Miðaverð frá
0 kr.




Krakka-kammermúsíkklúbburinn
12. apríl kl. 14:00–15:00
Kaldalón, Harpa
Aldur: 7–15 ára
Tungumál: Íslenska (auðvelt að njóta óháð tungumáli)
Aðgangur: Ókeypis – miða má nálgast frá 6. apríl á harpa.is
Fjölskyldudagskrá Hörpu, í samstarfi við Kammermúsíkklúbbinn, býður upp á notalega kammertónleika í Kaldalóni þar sem ungir og efnilegir hljóðfæraleikarar stíga á svið og flytja fjölbreytta og aðgengilega efnisskrá.
Á efnisskrá eru valdir kaflar úr kammerverkum eftir Felix Mendelssohn, Dmitri Schostakovich, Antonín Dvořák og Maurice Ravel.
Áheyrendur fá jafnframt innsýn í heim kammertónlistarinnar með fróðleik um hljóðfærin, tónskáldin og tónlistarstílinn – með það að markmiði að dýpka skilning og auka áhuga ungra hlustenda.
Efnisskrá:
F. Mendelssohn: Píanótríó í d-moll op.49, 1. kafli: Molto allegro agitato
Sveindís Eir Steinunnardóttir, fiðla
Baldur Þórarinsson, selló
Sól Björnsdóttir, píanó
D. Shostakovich: Píanótríó í e-moll op.67, 4. kafli: Allegretto-Adagio
Þórdís Emiliía Aronsdóttir, fiðla
Anton Ragnar Vigfússon, selló
Jakob Piotr Grybos, píanó
A. Dvorak: Terzetto í C-dúr, 1.kafli: Allegro ma non troppo
Rozalia Mietus, fiðla
Hugrún Birna Hjaltadóttir, fiðla
Arndís Ólafía Snorradóttir, víóla
M. Ravel: Strengjakvartett í F-dúr, 2. kafli: Assez vif - Tres rythmé
Björney Aronsdóttir, fiðla
Steinunn Dís Öfjörð Sævarsdóttir, fiðla
Haraldur Áss Liljuson, víóla
Urður Eir Baldursdóttir, selló

