© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
13. mars
Sala hefst
9. mars 2026, 12:00
(eftir 7 daga)




Kvikmyndatónlist: Tónar og tilfinningar
7. mars kl. 17:00-18:00 (Ath! Föstudagur!)
Kaldalón, Harpa
Aldur: 10–16 ára
Tungumál: Íslenska
Aðgangur: Ókeypis – nauðsynlegt er að bóka miða, miðasala hefst 16. febrúar á harpa.is
Kvikmyndatónlist: Tónar og tilfinningar er fræðandi og skemmtilegur viðburður fyrir börn, unglinga og foreldra þar sem kvikmyndatónlistin er tekin til skoðunar í allri sinni fjölbreytni.
Kvikmyndatónskáldið Einar Sv. Tryggvason fræðir áhorfendur um mismunandi tegundir kvikmyndatónlistar og sýnir hljóð- og mynddæmi á skjávarpa. Hvaða áhrif hefur tónlistin sem hljómar í kvikmyndum á okkur? Hvernig breytist upplifunin þegar tónlistin breytist?
Þessi lifandi kynning skerpir hlustunina og dýpkar skilning okkar á því hvernig tónlist mótar sögurnar sem birtast okkur á hvíta tjaldinu.

