Fjölskyldudagskrá Hörpu: Kvikmyndatónlist: Tónar og tilfinningar

Harpa

13. mars

Sala hefst

9. mars 2026, 12:00

(eftir 7 daga)

Kvikmyndatónlist: Tónar og tilfinningar

  •  7. mars kl. 17:00-18:00 (Ath! Föstudagur!)

  •  Kaldalón, Harpa 

  •  Aldur: 10–16 ára 

  •  Tungumál: Íslenska 

  •  Aðgangur: Ókeypis – nauðsynlegt er að bóka miða, miðasala hefst 16. febrúar á harpa.is 

Kvikmyndatónlist: Tónar og tilfinningar er fræðandi og skemmtilegur viðburður fyrir börn, unglinga og foreldra þar sem kvikmyndatónlistin er tekin til skoðunar í allri sinni fjölbreytni.

Kvikmyndatónskáldið Einar Sv. Tryggvason fræðir áhorfendur um mismunandi tegundir kvikmyndatónlistar og sýnir hljóð- og mynddæmi á skjávarpa. Hvaða áhrif hefur tónlistin sem hljómar í kvikmyndum á okkur? Hvernig breytist upplifunin þegar tónlistin breytist?

Þessi lifandi kynning skerpir hlustunina og dýpkar skilning okkar á því hvernig tónlist mótar sögurnar sem birtast okkur á hvíta tjaldinu.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger