© 2025 Tix Miðasala
Borgarleikhúsið
•
4 viðburðir
Miðaverð frá
6.300 kr.




Flóðreka
Eftir Aðalheiði Halldórsdóttur, unnið í samstarfi við Jónsa
minntu mig, náttúra, á náttúruna í mér
Verkið er innblásið af hinni margrómuðu sýningu “Flóð” eftir Jónsa sem sýnt var í Hafnarhúsinu í fyrra. Unnið verður út frá upplifun mannsins af náttúruöflunum, tengingu okkar við náttúruna, hvert annað og þá krafta sem búa innra með okkur.
Fáránleiki og fegurð brothættrar mennsku sem sífellt þvælist bæði fyrir og í sjálfri sér. Í eilífri leit að merkingu gleymist oft að það er öldugangur ólgandi úthafa sem rís og hnígur í brjósti mannsins.
Flóðreka er alltumlykjandi upplifun sem leikur á öll skynfæri.
Athugið:
Í sýningunni blikka ljós mjög reglulega í gegnum allt verkið, og hljóð ferðast um allt rýmið, umhverfis áhorfendur. Áhorfendur sitja í návígi við flytjendur. Vinsamlegast hafið þetta í huga ef þið eruð viðkvæm fyrir sterku ljósi eða hljóði. Einnig fyllir lykt frá Fischersund rýmið, ilmur sem ber með sér keim af hafinu.

