Shostakovitsj & Prokofíev - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

13. nóvember

Miðaverð frá

2.990 kr.

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri: Osmo Vänskä

Einleikari: Liza Ferschtman

Efnisskrá

Samy Moussa Elysium

Dmitríj Shostakovitsj Fiðlukonsert nr. 1

Sergej Prokofíev Sinfónía nr. 6

Heiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Osmo Vänskä, tekur hér á móti hollenska fiðluleikaranum Lizu Ferschtman sem hefur á síðustu árum skapað sér afar farsælan feril sem einleikari með mörgum af fremstu hljómsveitum heims. Liza tekst á við fyrsta fiðlukonsert Dmitríj Shostakovitsj, margslungna og glæsilega tónsmíð sem er uppfull af áhrifamiklum átökum og spennu. Konsertinn var saminn 1947–48 í skugga ofsókna á hendur tónskáldinu og var ekki frumfluttur fyrr en nokkrum árum eftir dauða Stalíns. Sjötta sinfónía Sergejs Prokofiev var samin á sama tíma og fiðlukonsert Shostakovitsj og er af mörgum talin krúnudjásn hinna sjö sinfónía meistarans. Kraftmikið og dulúðugt verk sem tónskáldið sagði vera samið til minningar um fórnarlömb innrásarstríðs Þjóðverja.

*Breyting hefur verið gerð á efnisskrá tónleikanna, í stað frumflutnings á Benthos eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur flytur hljómsveitin Elysium eftir Samy Moussa.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger