© 2025 Tix Miðasala
Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
13. nóvember
Miðaverð frá
2.990 kr.
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitarstjóri: Osmo Vänskä
Einleikari: Liza Ferschtman
Efnisskrá
Samy Moussa Elysium
Dmitríj Shostakovitsj Fiðlukonsert nr. 1
Sergej Prokofíev Sinfónía nr. 6
Heiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Osmo Vänskä, tekur hér á móti hollenska fiðluleikaranum Lizu Ferschtman sem hefur á síðustu árum skapað sér afar farsælan feril sem einleikari með mörgum af fremstu hljómsveitum heims. Liza tekst á við fyrsta fiðlukonsert Dmitríj Shostakovitsj, margslungna og glæsilega tónsmíð sem er uppfull af áhrifamiklum átökum og spennu. Konsertinn var saminn 1947–48 í skugga ofsókna á hendur tónskáldinu og var ekki frumfluttur fyrr en nokkrum árum eftir dauða Stalíns. Sjötta sinfónía Sergejs Prokofiev var samin á sama tíma og fiðlukonsert Shostakovitsj og er af mörgum talin krúnudjásn hinna sjö sinfónía meistarans. Kraftmikið og dulúðugt verk sem tónskáldið sagði vera samið til minningar um fórnarlömb innrásarstríðs Þjóðverja.
*Breyting hefur verið gerð á efnisskrá tónleikanna, í stað frumflutnings á Benthos eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur flytur hljómsveitin Elysium eftir Samy Moussa.