© 2026 Tix Miðasala
Hlégarður
•
3. desember
Miðaverð frá
5.900 kr.




Rauðu Jólin 2026
Það er komið að Rauðu jólunum! Fimmtudaginn 3. desember höldum við árlegt styrktarkvöld í Hlégarði að frumkvæði Jökuls Júlíussonar og í ár ætlum við að styrkja Reykjadal í Mosfellsdal.
Reykjadalur býður upp á sumar- og helgardvalir fyrir börn og ungmenni með fötlun auk Ævintýrabúða fyrir börn með ADHD, einhverfu og aðrar áskoranir. Þar er einnig boðið upp á fjölbreytt félagsstarf, samveru og jafningjastuðning fyrir ungt fatlað fólk og fjölskyldur þess. Alls nýta um 400 börn og ungmenni sér starfsemi Reykjadals á hverju ári.
Núverandi aðstaða annar hins vegar ekki þörfum starfseminnar og uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru um aðgengi. Með Rauðu jólunum viljum við leggja okkar af mörkum til að bæta aðstöðuna og skapa betri aðstæður fyrir þau börn og ungmenni sem njóta starfsins.
Líkt og undanfarin ár verður lifandi tónlist og uppboð. Það er vert að nefna að það er skilyrði að mæta í ljótri jólapeysu enda verða veitt verðlaun fyrir ljótustu peysuna.
Allur ágóði af miðasölu og uppboði rennur til Reykjadals.
Við hlökkum til að eiga með ykkur notalegt jólakvöld í Hlégarði.
Nánari upplýsingar um starf Reykjadals má finna hér: https://glofelag.is/reykjadalur

