© 2026 Tix Miðasala
Hallveigarstaðir
•
29. nóvember
Miðaverð frá
1.500 kr.




PALESTÍNSKUR MATUR OG MENNING
29.nóvember er alþjóðlegur samstöðudagur með Palestínu, og því tilvalið að koma saman til að styrkjast í samstöðu okkar og lyfta upp palestínskri menningu. Við munum borða palestínskan mat, hlýða á arabíska tónlist og að lokinni dýrindis máltíð ætlum við að dansa dabke-dansa saman undir leiðsögn kennara.
Þetta verður einstakt tækifæri til að eiga hlýlega samverustund á aðventunni og styrkja í leiðinni málefni sem skiptir máli, en allur ágóði rennur til palestínskra góðgerðarsamtaka.
Húsið opnar kl. 18:30 og borðhald hefst kl. 19:00. Grænmetismatur í boði.
Miðaverð:
6.000 kr. fyrir eldri en 12 ára
1.500 kr. fyrir börn 5–12 ára
Ókeypis fyrir yngri en 5 ára

