© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
24. janúar
Miðaverð frá
4.990 kr.




Óperukórinn í Reykjavík býður til stórtónleika í Eldborg þar sem flutt verður eitt áhrifamesta og stórbrotnasta meistaraverk tónlistarsögunnar – Sálumessa Mozarts, Requiem.
Requiem Mozarts er einstakt tónverk sem sameinar dramatískan kraft, djúpa tilfinningu og óviðjafnanlega fegurð. Tónlistin sveiflast á milli ógnar og vonar, myrkurs og ljóss og hefur snert hjörtu tónlistarunnenda í meira en tvær aldir. Mozart samdi verkið á síðustu mánuðum ævi sinnar, en lést árið 1791 áður en hann náði að ljúka því. Síðan hefur það skipað sérstakan sess meðal áhrifamestu verka klassískrar tónlistar.
Með Óperukórnum í Reykjavík koma fram fjórir af okkar fremstu einsöngvurum:
Þóra Einarsdóttir, sópran
Guja Sandholt, mezzósópran
Elmar Gilbertsson, tenór
Bjarni Thor Kristinsson, bassi
Stjórnandi: Aron Axel Cortes
Það er einstakt tækifæri til að upplifa þetta tímalausa meistaraverk í glæsilegri umgjörð Eldborgar í Hörpu. Verið velkomin á tónlistarviðburð sem snertir hjartað og situr lengi í minningunni.

