Jólasýning Ungleikhússins

Hljómahöll

•

7. desember

Sala hefst

13. nóvember 2026, 10:00

(eftir 2 daga)

Hæfileikaríkir krakkar stíga á svið og syngja og dansa inn jólin í vandaðri og kröftugri jólasýningu sem hentar fólki á öllum aldri.

Nemendur Ungleikhússins eru metnaðarfullir, ungir sviðslistamenn sem eru í senn skapandi, kraftmiklir og með heillandi útgeislun. Framfarir nemendanna hafa verið gífurlegar og eru til að mynda mjög margir þeirra nú í vinnu í atvinnuleikhúsum og sjónvarpi.

Áhorfendur fá að sjá fjölbreytt og glæsileg atriði, sem nemendur hafa unnið að með kennurum sínum síðastliðinn mánuð, þar sem söngur, dans, leiklist, gleði og einlægni er allsráðandi. Einnig verður nýjasta myndbandsverkefið okkar "MARY POPPINS" frumsýnt á sýningunni.

Markmið okkar og ósk er að fólk eigi með okkur skemmtilega stund og fari heim eftir sýningu með jólagleði og hlýju í hjarta.

ATH!

Nemendur UPU sýna aðeins á sýningunni kl.16:30.

Nemendur PPU sýna á báðum sýningum.

Sýningin í fyrra seldist upp á mettíma!

Nælið ykkur í miða og komið og njótið jólatöfranna.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger