© 2026 Tix Miðasala
Neskirkja
•
30. desember
Miðaverð frá
5.500 kr.




Hátíðartónleikar Gjallanda´
Verið velkomin á Hátíðartónleika Gjallanda!
Þegar jólin eru gengin í garð og fólkið bíður óþreyjufullt eftir nýju ári, vill Gjallandi framlengja jólaandann með hátíðlegum tónleikum í Neskirkju. Samhljómur hörpu og radda mun færa birtu og friðsæld inn í myrkasta skammdegið.
Prógram tónleikanna er prýtt norrænum og enskum verkum fyrir kvennakór og hörpu og verður meginstöpull tónleikanna verkið A Ceremony of Carols eftir Benjamin Britten.
Hörpuleikari verður Sólveig Thoroddsen.
Gjallanda skipa:
Anna Elísa Axelsdóttir,
Ásta Sigríður Arnardóttir,
Bryndís Ásta Magnúsdóttir,
Helga Guðný Hallsdóttir,
Kristrún Guðmundsdóttir,
Margrét Björk Daðadóttir,
Ragnheiður Petra Óladóttir,
Steinunn María Þormar,
Vera Hjördís Matsdóttir.

