© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
6. desember
Miðaverð frá
2.500 kr.




Á hinum árlegu jólatónleikum Kammersveitar Reykjavíkur er barokktónlist og hátíðleg stemning jafnan í forgrunni.
Að þessu sinni fær tónlist eftir hinn þýska Georg Philipp Telemann sérstakan heiðurssess í efnisskránni. Hann er eitt afkastamesta tónskáld barokktímans. Anna Elísabet Sigurðardóttir leikur einleik í víólukonserti Telemanns og Zachary Silberschlag leikur einleik í trompetkonserti hans.
Auk þess eru á efnisskrá verk eftir vini og samstarfsmenn Telemanns. Carl Philip Emanuel Bach var guðsonur tónskáldsins. Á tónleikunum verður leikin ein af strengjasinfóníum Bach sem hann samdi skömmu eftir að hann hafði tekið við sem eftirmaður Telemanns í Hamborg. Christoph Graupner kynntist Georg Philipp þegar þeir voru báðir við nám og störf í Leipzig. Graupner starfaði síðar við hirðina í Darmstadt og er Tríó sónatan samin þar. Johann Georg Pisendel var konsertmeistari um tíma í Collegium Musicum í Leipzig, tónlistarhópi sem Telemann stofnaði. Pisendel varð síðar mjög áhrifamikill fiðluleikari og tónskáld og starfaði mest allan sinn feril sem konsertmeistari við hljómsveit hirðarinnar í Dresden. Tónleikunum lýkur á hans þekktasta verki, Fantasíu.
Efnisskrá
Christoph Graupner: Tríó-sónata í h-moll GWV 219 fyrir flautu, fiðlu og fylgirödd
Georg Philipp Telemann: Konsert fyrir víólu og hljómsveit í G-dúr TWV 51:G9.
Einleikari: Anna Elísabet Sigurðardóttir
Carl Philipp Emmanuel Bach. Sinfónía fyrir strengi í C-dúr Wg. 182/3
Georg Philipp Telemann: Konsert fyrir trompet og hljómsveit í D-dúr TWV 51:D7.
Einleikari: Zachary Silberschlag
Johann Georg Pisendel: Fantasie. „Imitation des caractères de la danse“
(1687–1755)
Loure
Rigaudon
Canarie
Bourée
Musette: Lentement
Passepied: Gay, accelerando poco a poco
Polonaise: Majesteusement
Concertino: Presto
Tónleikarnir eru um klukkustund, án hlés.
Ókeypis aðgangur fyrir 12 ára og yngri.

