© 2026 Tix Miðasala
Sviðið, Selfossi
•
19. desember
Miðaverð frá
5.990 kr.




Jólabjöllurnar
Jólabjöllurnar mæta á Selfoss með splunkunýja tegund af erótík!
Sönghópurinn sem hefur glatt, hneykslað og kitlað hláturtaugar landsmanna í meira en áratug býður til stórskemmtilegra jólatónleika laugardaginn 19. desember á Sviðinu, Selfossi!
Á efnisskránni verður að venju góð blanda af eldri lögum og glænýjum sem hafa fengið hina sérstæðu Jólabjöllumeðferð. Klassísk lög fá nýtt líf, textarnir fara gjarnan þangað sem aðrir þora ekki og fátt ef nokkuð er heilagt.
Allir textar eru á íslensku, öll velkomin. Við bendum þó á að tónleikarnir henta ekki einstaklingum undir 20 ára aldri.
Komdu og kynntu þér splunkunýja tegund af erótík með Jólabjöllunum, við lofum að að jólin verða aldrei söm aftur.

