© 2026 Tix Miðasala
Litla Leikhúsið við Sigtún
•
6 sýningar
Miðaverð frá
3.900 kr.




Grandavegur 7
Húsið að Grandavegi 7 geymir sögu þriggja kynslóða - íslenska fjölskyldusögu um brennandi ást, sáran missi og leyndarmál sem tíminn fær ekki afmáð. Fortíð og nútíð fléttast saman, minningar vakna til lífsins og mörkin á milli þess sem er raunverulegt og þess sem okkur dreymir verða óljós.
Hin unga Fríða er gædd skyggnigáfu og sér heiminn á annan hátt en við hin. Í gegnum hennar augu fáum við að upplifa sögu sem á sér djúpar rætur í íslenskum veruleika. Við fylgjumst með áhrifamikilli örlagasögu þar sem minningar, ástir, sorgir og veruleiki renna saman í eitt.
Sýning sem snertir hjartað og situr lengi í minningunni.
Sýningin er ekki við hæfi barna yngri en 13 ára.
Aðeins fáar sýningar, svo tryggðu þér miða sem fyrst.
Sýnt er í Litla leikhúsinu við Sigtún.
Miðaverð: 3.900 kr.
Hópatilboð fyrir 6 og fleiri: 3.500 kr.
Leikfélag Selfoss sýnir Grandaveg 7, byggt á skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur og leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur. Leikstjóri sýningarinnar er Rúnar Guðbrandsson.

