Ljóðin eru Tik Tok bókmenntanna og tónlistin er hraðritun tilfinninganna

Hannesarholt

•

21. apríl

Miðaverð frá

3.900 kr.

Ef orðin ná ekki að fanga tilfinningarnar og boðskapinn, er oftar en ekki leitað í tónlistina.  Ef það dugar ekki til er þögnin talin áhrifaríkasta leiðin til að tjá hið ólýsanlega.  Ég mun spila frumsamda tónlist og flytja ljóð sem eru innblásin af ferðalagi mínu í gegnum lífið og starfi mínu sem heimilislæknir.  Verkin tengjast mörgum af þeim málefnum sem við þurfum að vera óhrædd að ræða; dauði, sorg, tengsl, hamingja og einmanaleiki.  Eitt af markmiðum mínum með tónlistinni og ljóðunum er að vekja athygli á mismunandi tilfinningum sem geta vaknað hjá okkur í hversdagsleikanum.  

Fyrir áhugasama er hægt að fylgjast nánar með á Instagramsíðunni "stafsson.ordhljomur".

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger