© 2026 Tix Miðasala

Hannesarholt
•
4. nóvember
Miðaverð frá
3.900 kr.




Steinunn Þorvaldsdóttir, söngkona, flytur sönglög og aríur eftir Richard Wagner, Jean Sibelius og Richard Strauss ásamt Önnu Þórhildi Gunnarsdóttur, píanista. Richard Wagner og Richard Strauss eru miklir máttarstólpar í tónbókmenntum síðrómatíska tímabilsins. Tónlist þeirra tekst á við viðfangsefni þar sem ástin, þráin og örlögin takast á í stórbrotnum sönglínum og ríkri hljómaframvindu. Tónlistin einkennist af dramatískum andstæðum og tekst tónskáldunum að fanga hið flókna tilfinningalíf mannanna í tónum. Sönglög Sibeliusar úr ópus 36 og ópus 37 verða flutt, en um er að ræða einstaklega ljóðræn og tilfinningarík söngverk sem fjalla um ást, náttúrufegurð, söknuð og þrá.
Þrennar óperur Wagner koma við sögu á tónleikum. Aría Elsu, Einsam in trüben Tagen, úr óperunni Lohengrin, verður flutt ásamt aríunni Dich teure Halle úr Tannhäuser. Einnig verður Isoldes Liebestod úr óperunni Tristan und Isolde, flutt - en það verk er í útsetningu fyrir sóló píanó eftir Franz Liszt. Liebestod er hápunktur óperunnar, þar sem Isolde syngur til dauða þegar hún gengur fram á látinn elskhuga sinn, Tristan. Flutt verða lög úr ljóðaflokkinum Wesendonk eftir Wagner, þar leitar tónskáldið á dýptina, og þrá, fegurð og sársauki fléttast saman. Að lokum hljómar Zueignung eftir Richard Strauss, ákafur og glóandi óður til ástarinnar. Saman taka verkin tónleikagesti á ferðalag um ástina í öllum sínum myndum, allt frá sársaukafullri þrá og innhverfri íhugun til gleði, alsælu og dýpsta þakklætis.
Um flytjendur:
Steinunn Þorvaldsdóttir útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands í klassískum söng með tónsmíðar sem aukafag vorið 2021. Steinunn hóf söngnám sitt árið 2010 hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur í Söngskóla Reykjavíkur þar sem hún kláraði 8 stig árið 2016. Steinunn fékk styrk til söngnáms frá Minningarsjóði Vilhjálms Vilhjálmssonar skólaárið 2015-2016 og hlaut einnig styrk úr fyrstu úthlutun Minningarsjóðs Heimis Klemenzsonar fyrir áframhaldandi tónlistarnámi í lok árs 2020. Sem tónskáld vann Steinunn verkefnið Tónlist við ljóð Borgfirðinga árið 2022 þar sem hún samdi söngtónlist við borgfirsk ljóð. Steinunn hefur einnig útsett fyrir kóra, samið kvikmyndatónlist við stuttmynd sem og að semja sönglög fyrir rödd og píanó fyrir tvær plötur sem voru gefnar út árið 2025.
Anna Þórhildur Gunnarsdóttir lauk B.Mus gráðu í píanóeinleik frá Listaháskóla Íslands, undir leiðsögn Peters Máté og Eddu Erlendsdóttur og MA-gráðu í píanóeinleik við Conservatorium Maastricht hjá prof. Katia Veekmans. Anna hefur hlotið margvíslega styrki, þ.á.m. úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar og Henrïette Hustinx-hvatningarverðlaunini. Í dag starfar Anna sem píanókennari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Allegro Suzuki Tónlistarskólann.

