© 2026 Tix Miðasala
Ægir Hafnarfirði
•
12. nóvember
Miðaverð frá
2.900 kr.




Flying Elbows - útgáfutónleikar
Flying Elbows halda útgáfutónleika á Ægi 220 í Hafnarfirði, þar sem frumsamið efni af nýútkominni EP plötu "look up and live" fær að njóta sín í alvöru aðstæðum í bland við eldri lög og valdar perlur.
Flying Elbows er hljómsveit sem varð til fyrir tilviljun en hún var sett saman fyrir einn viðburð fyrir nokkrum árum. Við uppgötvuðum svo hvað það er ótrúlega gefandi að skapa tónlist með fólki á svipaðri bylgjulengd.
Ef þú fílar lifandi tónlist sem er spiluð af fólki sem hefur virkilega gaman af þessu — þá ertu á réttum stað. Kíktu á nýju plötuna okkar á Spotify og kíktu svo á útgáfutónleikana okkar.
Um plötuna:
Nýja platan okkar fangar nákvæmlega það sem hljómsveitin stendur fyrir: fjölbreytt rokk.
Lag 1 – Different planet. Grípandi lag sem sækir innblástur í breytta heimsmynd.
Lag 2 – Echoes. Rólegt og rokkað. Þú hélst að þetta samband væri hið eina sanna, en sást svo seinna að það var ekki málið og eitthvað betra beið handan við hornið. Eftir standa bergmál.
Lag 3 – If I was your god. Okkar þyngsta lag til þessa. Samið backstage á Lemmy. Einlægt, kraftmikið og með grípandi riffi.
Lag 4 – Look up and live. Líttu upp úr símanum! Smá soul fílingur í þessu og sterk skilaboð um að missa ekki af lífinu.
Um hljómsveitina:
Arnar Már Ólafsson - söngur og gítar
Hreiðar Júlíusson - trommur
Magnús Þór Ásgeirsson - gítar
Stefán Sigurðsson - bassi
Þetta verður kvöld fyrir þá sem vilja njóta góðrar tónlistar í þægilegu umhverfi.
Taktu kvöldið frá og vertu með okkur í Hafnarfirði og upplifðu kvöld fullt af nýju efni og frábærri stemningu.

