© 2026 Tix Miðasala
Veislusalur Safamýri
•
13. nóvember
Miðaverð frá
15.900 kr.




Herrakvöld Víkings 2026
Hið árlega herrakvöld Víkings verður haldið föstudaginn 13. nóvember í veislusal Víkings í Safamýri. Víkingar ættu ekki að láta sig vanta á þennan glæsilega viðburð og nýta tækifærið til að skála og fagna í góðum hópi.
Miðafjöldi er takmarkaður og því er mikilvægt að tryggja sér miða í tæka tíð. Hægt er að kaupa staka miða á kvöldið en einnig er hægt að bóka heil borð (10 sæti) með því að senda póst á gudjon@vikingur.is þar sem kvittun fyrir miðum fylgir með.
Húsið opnar kl. 18.30 og borðhald hefst stundvíslega kl. 19.30. Auddi Blō og vinir sjá um veislustjórn.
Enginn verður svangur því boðið verður upp á glæsilegt steikarhlaðborð að hætti Múlakaffis. Ef þú hefur séróskir varðandi matinn biðjum við þig um að hafa samband á gudjon@vikingur.is

