© 2026 Tix Miðasala

Salurinn
•
22. nóvember
Miðaverð frá
8.900 kr.




Komdu með og fögnum saman fertugsafmæli einnar ástsælustu persónu íslensku kvikmyndasögunnar!
Afmælisveisla með öllu tilheyrandi í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 22. Nóvember frá kl. 14:00 - 17:00.
Gleðin hefst á samverustund með stjörnum og leikstjóra kvikmyndarinnar þar sem Edda Björgvins, Þórhildur Þorleifsdóttir og Sólveig Arnarsdóttir sitja fyrir svörum. Þær munu deila sögum og reynslu sinni af gerð myndarinnar og sjálf stórsöngkonan Diddú mætir og flytur titillagið.
Veitingastaðurinn Krónikan stendur svo fyrir alvöru kaffihlaðborði í anda Stellu með öllu tilheyrandi fyrir sýningu myndarinnar. Á borðum verða glæsilegar brauðtertur með nóg af mæjonesu, rjómaskreyttar hnallþórur á gamla mátann og að sjálfsögðu laxahjarta fyrir Salomón. Húsið opnar klukkutíma fyrr og gefst gestum færi á að næla sér hressingu af barnum og hita sig upp fyrir gleðina.
Einstakt tækifæri fyrir kynslóðirnar að sameinast og skála fyrir okkar konu, Stellu Löve.
Hlökkum til að sjá ykkur!

