© 2026 Tix Miðasala
Tjarnarbíó
•
21. apríl
Miðaverð frá
4.900 kr.




UPPHAV fjallar um örlagadaginn 1. apríl 1919 á litlu eyjunni Hesti í Færeyjum, þegar tveir fiskibátar hurfu á sjó og flestir karlar þorpsins drukknuðu. Eftir sátu ekkjurnar, aldraðir og börnin.
Leikkonan Gunnvá Zachariasen er ættuð frá Hesti. Föðuramma hennar, Óluva, var sex ára gömul þegar slysið varð. Sagan er sögð í gegnum augu ömmunnar og reynslu barnsins af slysinu og afleiðingum þess.
Upphav er bæði frásögn og hugleiðing um samfélagið og eftirmála hörmunganna, um baráttuna sem konurnar og börnin, sem eftir lifðu, þurftu að heyja til að halda samfélaginu gangandi. Tilvera þeirra krafðist líkamlegs þreks, andlegs seiglu og samheldins samfélags sem byggði á umhyggju.
Handrit: Gunnvá Zachariasen og Marita S. Dalsgaard
Leikstjórn og dramatúrgía: Marita S. Dalsgaard
Leikur: Gunnvá Zachariasen
Tónsmíðar og hljóðmynd: Anna Katrin Ø. Egilstrøð
Sjónræn hönnun: Silje Grimstad
Þýðing á ensku: Marita Dalsgaard

