© 2026 Tix Miðasala

Salurinn
•
19. nóvember
Miðaverð frá
5.000 kr.




Marianna Shirinyan er heimsfrægur píanóleikari. Hún er fædd í Armeníu og er prófessor í píanóleik við Konunglega danska tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Að hlýða á píanóleik Mariönnu Shirinyan er minning sem lifir lengi.
Þann 19. nóvember kemur Marianna fram í Salnum á tónleikum þar sem fegurð tónlistarinnar þjónar jafnframt góðum málstað og flytur boðskap vonar og samkenndar. Gestasöngvari verður sópransöngkonan Hlín Leifsdóttir og Kvennakór Reykjavíkur undir stjórn Ágotu Joó kemur einnig fram. Allur ágóði tónleikanna rennur til starfs dönsku hjálparsamtakanna Mission10forty í þágu stríðshrjáðra kristinna barna í Armeníu og víðar.
Armenska tónlistin skipar sérstakan sess í efnisskránni. Marianna Shirinyan leikur verk eftir armensku tónskáldin Arno Babajanyan og Vardapet Komitas. Á efnisskránni eru einnig verk eftir Frédéric Chopin, Franz Schubert, Johann Sebastian Bach, Sergei Rachmaninov og Árna Thorsteinsson.
Flytjendur:
Marianna Shirinyan – píanó
Hlín Leifsdóttir – sópran
Kvennakór Reykjavíkur undir stjórn Ágotu Joó
Tónleikarnir sameina þannig armenskan bakgrunn Mariönnu Shirinyan og sígilda evrópska og íslenska tónlistarhefð. Kynnir er Birgir Þórarinsson, fv. Alþingismaður.
Von sem nær langt út fyrir tónleikasalinn
Þegar stríð grípur inn í líf barns hverfur oft margt af því sem ætti að vera sjálfsagt: öryggi, ró og trúin á bjartari framtíð. Mission10forty vinnur að því að styðja börn og fjölskyldur þeirra og hjálpa þeim að skapa öruggari framtíð.
Starfið byggist á tveimur meginþáttum: styrktarverkefnum fyrir börn í Armeníu og RESET-verkefninu á stríðshrjáðum svæðum. Í Vardenis í Armeníu vinnur Mission10forty að því að bæta uppvaxtarskilyrði barna, bæta líðan þeirra og styðja fjölskyldur þeirra.
RESET-verkefnið, undir faglegri stjórn sálfræðingsins Kirsten Callesen, er starfrækt bæði í Armeníu og Úkraínu. Þar fá börn og fjölskyldur stuðning til að takast á við streitu og áföll. Jafnframt eru heimamenn þjálfaðir til að veita áframhaldandi stuðning, þannig að hjálpin geti fest rætur í samfélögunum og náð til fleiri.
Við bjóðum ykkur að eiga kvöldstund með fallegri tónlist og um leið gefst tækifæri til að rétta börnum, sem þurfa á stuðningi okkar að halda, hjálparhönd. Tónarnir hljóma aðeins eina kvöldstund í Salnum, en lifa í minningunni. Vonin sem þessi kvöldstund kveikir teygir sig langt út fyrir tónleikasalinn.

