© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
7. apríl
Sala hefst
2. nóvember 2026, 09:00
(eftir 6 daga)




Alþjóðlega hönnunarráðstefnan DesignTalks fer fram 7. apríl 2027 í Silfurbergi í Hörpu.
Þema HönnunarMars og DesignTalks 2027 er Innsýn. Innsýn er augnablikið þegar það sem áður var falið kemur í ljós, við sjáum meira en það sem blasir við og förum að skilja það sem býr að baki. Hugmyndirnar, tilraunirnar, mistökin og óvæntu uppgötvanirnar sem urðu hluti af leiðinni að niðurstöðunni.
Þegar allt gerist hraðar og krafa um fullkomnun verður sífellt meiri viljum við skapa rými fyrir hið óvænta, hið ófullkomna og hið mannlega. Fyrir hugmyndir sem eru enn í mótun, tilraunir sem misheppnast, spurningar sem hafa ekki enn fengið svar og smáatriði sem annars fara óséð.
Innsýn er að líta nær. Að staldra við og spyrja hvað býr undir yfirborðinu. Hvað þurfti að gerast áður en hugmynd varð að verki? Hvaða ákvarðanir mótuðu það? Hvað breyttist á leiðinni og hvað varð til fyrir tilviljun?
Líttu nær. Það er meira að sjá.
Forsöluverð fyrir hönnuði og arkitekta: 17.900 ISK
Forsala: 19.900 ISK
Fullt verð: 23.900 ISK
DesignTalks hefur verið lykilviðburður HönnunarMars, hátíðar hönnunar og arkitektúrs á Íslandi frá upphafi og fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur innblásturs og samtals um hönnun og arkitektúr, samtímarýni og framtíðarsýn. Fjölmargir hafa komið fram í gegnum árin og hér má sjá sýnishorn frá fyrri viðburðum.
Listrænt teymi dagskrá DesignTalks skipa Sigurður Oddsson, hönnunarstjóri Aton, Nils Wiberg, hönnuður gagnvirkni og meðeigandi Gagarín, Magnea Þ. Guðmundsdóttir, arkitekt og stofnandi og eigandi teiknistofunnar STIKU, Jón Helgi Hólmgeirsson, vöruhönnuður, tónlistarmaður og fagstjóri MA Design and New Environments við Listaháskóla Íslands og
Anna Clausen, stílisti og listrænn stjórnandi.
Viðburðurinn fer fram á ensku.

