© 2026 Tix Miðasala
Listaháskólinn Laugarnesi
•
12. - 15. október
Miðaverð frá
0 kr.




Þriðja árs leikaranemar LHÍ setja upp Þrjár systur eftir rússneska leikskáldið Anton Tsjekhov.
Frumsýnt mánudaginn 12. október 2026 í LHÍ Laugarnesi.
Uppsetningin er hluti af leikaranámi Sviðslistadeildar LHÍ, innan áfangans Leiktúlkun V.
Þrjár systur var frumsýnt árið 1901 og er eitt þekktasta leikrit Anton Tsjekhovs. Verkið fjallar um systurnar Olgu, Maríu og Irínu og bróður þeirra Andrei sem búa í rússneskum smábæ og þrá að komast aftur til Moskvu. Undir yfirborði hversdagslegs lífs takast persónurnar á við vonir, ást, vonbrigði, einsemd og þá tilfinningu að lífið sem þær dreymir um sé sífellt að færast fjær.
Nemendur vinna undir handleiðslu Agnars Jóns Egilssonar, dósents við LHÍ og fagstjóra leikarabrautar. Leikmynd, búningar og öll umgjörð sýningarinnar er í höndum leikhópsins.
Hvenær:
Frumsýning - mánudaginn 12.10.26 kl: 20.00
2. sýning - þriðjudaginn 13.10.26 kl: 20.00
3. sýning - miðvikudaginn 14.10.26 kl: 20.00
4. sýning - fimmtudaginn 15.10.26 kl: 20.00
(Sýningin er 3 klukkustundir með einu hléi)
Hvar:
Stóra Black Box, LHÍ Laugarnes.
Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík.
Gengið er inn fyrir neðan hús, frá steypta bílastæðinu. Inngangurinn er nær Sæbrautinni.
Persónur og leikendur:
Írena: Sigríður Ragnarsdóttir
Masha: Gúa Margrét Bjarnadóttir
Olga: Rán Ragnarsdóttir
Natasha: Lísbet Sveinsdóttir
Andrei: Freysteinn Sverrisson
Tsjebútykin: Óskar Snorri Óskarsson
Kúlygín: Baldur Björnsson
Túzenbach: Ágúst Örn Börgesson Wigum
Vershínín: Kolbeinn Sveinsson
Saljoní: Baldur Björnsson
Anfísa: Freysteinn Sverrisson, Ágúst Örn Börgesson Wigum og Kolbeinn Sveinsson
Skortsov einvígisvottur: Rán Ragnarsdóttir
Aðrir aðstandendur:
Verkefnastjórn, leiktúlkunarkennsla og leikstjórn: Agnar Jón Egilsson
Aðstoð með hreyfingar: Vala Ómarsdóttir
Aðstoð með raddvinnu: Edda Rún Ólafsdóttir
Aðstoð við tækni: María Jóngerð Gunnlaugsdóttir
Tæknikeyrsla, sýningarstjórn og sviðstjórn: Nemendur í sviðshöfundanámi

