© 2026 Tix Miðasala

Hannesarholt
•
13. október
Miðaverð frá
3.000 kr.




Tónleikar Tiktúru í Hannesarholti
Þann 13. október næstkomandi gefur Tiktúra út sína fyrstu smáskífu. Reyndar eru þær tvær: Í pokahorninu og Krummafótur, en þær verða gefnar út samhliða á öllum helstu streymisveitum. Af þessu tilefni ætlar Tiktúra að halda tónleika í Hannesarholti og flytja lögin af þessum plötum og hver veit nema hægt verði að fjárfesta í þeim á föstu formi!
Komið og fagnið með okkur.
Djasskvintettinn Tiktúra var stofnaður síðla árs 2024 en meðlimir hans eru Ásgeir Kjartansson á gítar, Kormákur Logi Bergsson á píanó, Moritz Christiansen á tenor saxófón, Hjálmar Carl Guðnason á bassa og Þorsteinn Jónsson á trommur. Hljómsveitin leikur frumsamda blöndu af nútímadjass og sálartónlist með sterkum áhrifum úr þjóðlaga- og leikhústónlist en tónlistin flakkar í orku allt frá ljúfum, einlægum og seiðandi tónum upp í ákafa og kraftmikla óreiðu.

