© 2026 Tix Miðasala
Kristskirkja v/Landakot
•
18. nóvember
Miðaverð frá
6.500 kr.




Landnám hugans
Heilög Sesselja, verndari tónlistarinnar, heiðruð
Einstakur hljóðheimur í Kristskirkju þar sem steinn, náttúra og mannleg rödd mætast í tónlist. Verk Páls Guðmundssonar á Húsafelli hljóma við hlið tónlistar Arvo Pärt og Sir John Tavener í dagskrá sem brúar hið jarðneska og hið andlega.
Á tónleikunum Landnám hugans í Kristskirkju mætast ólíkir hljóðheimar – steinhörpur og náttúruhljóðfæri, söngraddir, strengir, harpa, flautur og slagverk.
Á efnisskránni eru verk eftir Pál Guðmundsson á Húsafelli, Arvo Pärt og Sir John Tavener, auk frumflutnings á verkum Páls í nýjum útsetningum.
Flytjendur:
Páll Guðmundsson á Húsafelli – steinhörpur og náttúruhljóðfæri
Katie Buckley – harpa
Frank Aarnink – slagverk
Áki Ásgeirsson – flautur og steintrompet
Halldór Eldjárn – slagverk
Hrefna Berg Pétursdóttir – fiðla
Sigrún Harðardóttir – fiðla
Steina Kristín Ingólfsdóttir – víóla
Júlía Mogensen – selló
Kvennakórinn Húsafellsdætur
Einsöngur: Björg Þórhallsdóttir og Kristín Einarsdóttir Mäntylä
Stjórnandi: Hilmar Örn Agnarsson

