© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
28. október
Miðaverð frá
5.200 kr.




Hróðmar Sigurðsson, gítar, pedal steel
Eiríkur Orri Ólafsson, trompet
Birgir Steinn Theodorsson, kontrabassi
Sólrún Mjöll Kjartansdóttir, trommur
Á tónleikum kvartettsins verður flutt tónlist Hróðmars, en hann hefur sent frá sér tvær plötur, Hróðmar Sigurðsson (2021) og +1 (2025). Hann vinnur nú að nýrri plötu fyrir kvartett og mun flytja töluvert af nýju efni á tónleikunum, sem væntanlegt er á þeirri plötu á næsta ári. Tónlistin fellur undir jazzregnhlífina, en þar má einnig greina áhrif úr rokktónlist, ambient og sálartónlist. Unnið er að miklu leyti með frjálsan spuna, þar sem hljómsveit Hróðmars gegnir mikilvægu hlutverki í útsetningu og mótun tónmálsins. Hróðmar Sigurðsson hefur hlotið viðurkenningu sem bæði hljóðfæraleikari og tónskáld. Hann var valinn „bjartasta vonin í jazz- og blústónlist“ á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021 og hljómsveit hans hlaut jafnframt tilnefningu til verðlaunanna sem „besti flytjandinn“ á sömu hátíð.

