© 2026 Tix Miðasala
Listasafn Reykjavíkur
•
15. nóvember
Miðaverð frá
3.900 kr.




Kynning þar sem listamennirnir Jarkko Partanen og Jussi Matikainen í WAHAUS segja frá tilurð The Companion, ræða ferlið og taka sýnidæmi með hjálp hugrakkra sjálfboðaliða úr áhorfendahópnum. Í afslöppuðu andrúmslofti skoðum við saman hugmyndir á borð við manngervingu, samlíðan og ekki-mennskan vilja. Í lok kynningarinnar verður gestum boðið að klappa vélhundi.
WAUHAUS er þverfaglegur listhópur í Helsinki sem var stofnaður árið 2016. Verk hópsins má staðsetja milli ólíkra listgreina og hafa þau verið sýnd í ýmiss konar rýmum, svo sem söfnum, svörtum kössum, borgarlandslagi, á stórum leikvöngum og aðalsviðum stofnanaleikhúsa. WAUHAUS eru þekkt fyrir samsköpun og fagurfræði þar sem hið hljóð- og sjónræna fléttast saman. Meðlimir WAUHAUS eru sviðshönnuðurinn Laura Haapakangas, leikstjórinn Juni Klein, sviðshönnuðurinn Samuli Laine, hljóðhönnuðurinn Jussi Matikainen, danshöfundurinn Jarkko Partanen, hljóðhönnuðurinn Heidi Soidinsalo, framleiðandinn Minttu-Maria Jäävuori og framkvæmdastjórinn Julia Hovi. Hópurinn vinnur með öðru listafólki og menningarstofnunum bæði í Finnlandi og erlendis.
Listamenn: Jarkko Partanen, Jussi Matikainen, Laura Haapakangas from WAUHAUS
Útlit vélhunds: Kari Kankaanpää
Ljósahönnun: Mia Jalerva
Þróun hugbúnaðar: Aki Panuma (Probot)
Framleiðandi: Julia Hovi
Meðframleiðendur: WAUHAUS (Helsinki), Black Box teater (Oslo), Kiasma Theatre (Helsinki).
Í samstarfi við: Probot
Styrkt af: Nordic Culture Point, Jenny and Antti Wihuri Foundation, The Arts Promotion Centre Finland, City of Helsinki.
Sýningin er partur af dagskrá Reykjavík Dance Festival. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á

