© 2026 Tix Miðasala
Listasafn Reykjavíkur
•
14. nóvember
Miðaverð frá
3.900 kr.




MYRKRAEYJA – Danspartý, performansar & DJ / SHADOWS
Við finnum öll fyrir því. Úti er kalt en inni er sjóðandi heitt. Gakktu í bæinn og hlýjaðu þér með okk
ur í lokahófi Reykjavík Dance Fesetival. Það má búast við sjóðandi heitri, dáleiðandi dansstemningu á mörkum hita og kulda. Hvað gerum við með líkömum okkar? Hreyfum okkur? Hristum? Skreytum okkur? Hlustum?
Þau Kanema og Luis munu draga fram dans-, tónlistar- og performance-menningu sem lendir oft á jaðrinum en fær nú að taka öll völd á nóvemberkvöldi í Austurbæjarbíói.
Þar sem hiti mætir kulda verður eldaður eins konar pottréttur, kryddaður með dansi, dulúð, tónlist og óræðni með dassi af kaótík.
Kanema og Luis munu draga fram dans-, tónlistar- og performance-menningu sem lendir oft á jaðrinum en fær nú að taka öll völd á nóvemberkvöldi í Austurbæjarbíói.
Kanema og Luis sameinast í gegnum ástríðu fyrir tónlist frá ólíkum hlutum Afríku. Þau eiga sterkar rætur og persónulega tengingu við álfuna og hafa í gegnum árin fundið sameiginlegt tungumál í tónlist, dansi og performans. Sem plötusnúðateymið Choconilla & DJ Lui hafa þau skapað sér sameiginlega hljóðheim þar sem amapiano, afrobeat, popp og önnur áhrif mætast. Þar eru þau ekki endilega að leita að fullkominni útfærslu heldur eftir einhverju sem gerist í rýminu: stemningu, orku, tengingu og ferskleika.
Úr þessum sameiginlega hljóðheimi og áhuga á líkamanum, tónlistinni og því sem getur gerst þegar fólk kemur saman verður lokahófið á Reykjavík Dance Festival til. Kvöldið sækir í það sem gerist þegar tónlist, líkami og fólk fara að hreyfast saman. Ritúalískt, kraftmikið, stundum dáleiðandi, skrítið, og óútreiknanlegt. Hér er ekki endilega verið að leita að hinu fullkomna eða fágaða, heldur eftir tilfinningu og orku sem þarf við þurfum öll að losa út.
Danspartýið er partur af dagskrá Reykjavík Dance Festival. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á

