© 2026 Tix Miðasala
Tjarnarbíó
•
15. nóvember
Sala hefst
29. september 2026, 12:00
(eftir 1 klukkustund)




Verkið Heyrðu mig er innblásið af lífi dansarans Diljár Sveinsdóttur sem fæddist með takmarkaða heyrn en fór sem barn í kuðungsígræðslu. Hún hefur síðan þá skapað sér leið sem atvinnudansari og listakona. Sveinbjörg Þórhallsdóttir er danshöfundur Heyrðu mig en hún er einnig móðir Diljár. Dansverkið segir frá ferðalagi Diljár, frá bernsku til dagsins í dag, þar sem baráttan, þrautseigjan, líf og list flæða inn í hreyfingu, rytma og líkama. Dansverkið er flutt inn í innsetningu eftir Jóní Jónsdóttur en innsetningin byggir á eyranu sjálfu, bifhárunum og kuðungnum. Urður Hákonardóttir gerir tónlist og hljóðmynd og Kjartan Darri Kristjánsson gerir lýsingu.
Sveinbjörg Þórhallsdóttir er danshöfundur sem í verkum sínum rannsakar tengsl innri skynjunar og líkamlegrar tjáningar. Hún lauk dansnámi í New York og er með meistaragráðu í kóreógrafíu frá Fontys-háskólanum í Hollandi.
Listsköpun hennar byggist á leit að einlægni í hreyfingu, að sannleikanum sem birtist þar sem tími, skynjun og nærvera mætast. Með hugleiðslu og djúpri tengingu við innri skynjun líkamans skapar hún aðstæður þar sem hreyfingar geta sprottið fram á einlægan og lífrænan hátt, mótaðar af reynsluheimi og upplifun dansarans.
Sveinbjörg hefur starfað víða á sviði dans- og sviðslista, bæði í Reykjavík og á alþjóðlegum vettvangi, og hlotið fjölda tilnefninga og viðurkenninga fyrir verk sín. Hún er einn af stofnendum Reykjavík Dance Festival (2002) og Dansverkstæðisins (2010). Á árunum 2011–2021 gegndi hún stöðu prófessors og fagstjóra samtímadans við Listaháskóla Íslands.
Danshöfundur: Sveinbjörg Þórhallsdóttir
Dansari: Diljá Sveinsdóttir
Sjónrænt útlit: Jóní Jónsdóttir
Tónlist: Urður Hákonardóttir
Lýsing: Kjartan Darri Kristjánsson
Listræn ráðgjöf: Margrét Sara Guðjónsdóttir
Ljósmynd á plakati og af sýningu: Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir
Sýningin er partur af dagskrá Reykjavík Dance Festival. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á https://www.reykjavikdancefestival.com/

