© 2026 Tix Miðasala
Tjarnarbíó
•
12. nóvember
Miðaverð frá
3.900 kr.




Í verkinu CLAP & SLAP er kafað í það margslungna, lamandi spennuástand sem skapaðist í Austur-Evrópu (þá sérstaklega á milli Litháen og Belarús) í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu þann 24. febrúar 2022. Hér er þessi spenna skoðuð í sögulegu, pólitísku og samfélagslegu ljósi, með hliðsjón af persónulegri reynslu þeirra Agnietė og Igor. Þau tóku virkan þátt í uppreisninni í Belarús árið 2020; Igor var viðstaddur mótmæli í Belarús en Agnietė mótmælti fyrir framan sendiráð landsins í Vilnius. Igor neyddist til að yfirgefa heimalandið; Agnietė ákvað að hætta að vinna með rússneskumælandi listafólki. Í dag mætast þau á sviðinu og reyna að eiga í samtali sem virðist ómögulegt handan listarinnar – tefla saman ótta og nauðsynlegum viðbrögðum, sameiginlegri og einstaklingsbundinni ábyrgð, persónulegum harmleik og pólitískum hamförum.
Án þess að ætla sér hið óhugsandi, að finna lausnir á pólitískum og hernaðarlegum átökum, vonast þau til þess að sýningin veki vangaveltur um getu okkar til að greina á milli ábyrgðar og sektar, þjóðerniskenndar og þjóðernisástar, sjálfsvarnar og árásargirni, leitar að trausti og viðleitni til að veita vernd. Hvernig getum við varið okkur án þess að leika eftir ofbeldið sem við viljum berjast gegn? Getum við virt ólík viðhorf, staðið með persónulegum skoðunum okkar og varið frelsi hvers og eins án þess að brjóta á réttindum annarra? Þessar spurningar leggja Agnietė og Igor fyrir áhorfendurna og sig sjálf.
Sýningin var valin á Aerowaves Twenty26 og hlaut einnig sérstök dómnefndarverðlaun á Sirenos International Theatre Festival í Litháen 2025.
Hugmynd & kóreografía: Agniete Lisičkinaite, Igor Shugaleev Flytjendur: Agniete Lisičkinaite, Igor Shugaleev Tónskáld: Agne MatulevičiūtėLeikmynd & búningar: Oles Makukhin Dramatúrg: Bush Hartsorn Listræn ráðgjöf: Olga Lapina Ljósahönnuður: Povilas Laurinaitis Frumsýning: 2025, New Baltic Dance Festival
Framleiðsla: Be Company / Agniete Lisickinaite Styrkt af: Lithuania Culture CouncilResidensíur: Radialsystem Berlin, Studio ALTA, Bora Bora dance centre, Santarcangelo Festival.
Umhyggjuviðvörun: Nekt, ofbeldi (listafólkið slær hvort annað utan undir)
Sýningin er partur af dagskrá Reykjavík Dance Festival. Dagskrána má nálgast á https://www.reykjavikdancefestival.com/

