© 2026 Tix Miðasala

Bíó Paradís
•
6. nóvember
Sala hefst
29. september 2026, 08:00
(eftir 6 daga)




IA x Gísli Gunnarsson: Úr Öskunni - Live in Grindavík - Frumsýning
Sem hluti af Iceland Airwaves 2026 kynna Airwaves og Reykjavík Music City, í samstarfi við By Norse Music, sérstaka frumsýningu á "Úr Öskunni – Live in Grindavík" – tónleikamyndband frá árinu 2025 sem fangar einstaka tónleika í kirkjunni í Grindavík, bænum sem þurfti að yfirgefa í kjölfar eldsumbrota.
Tónleikarnir, sem fóru upphaflega fram á Iceland Airwaves 2025 færðu tónlistina aftur til Grindavíkur og sköpuðu tækifæri fyrir fólk með tengsl við bæinn til að koma saman á þeim stað sem það hafði neyðst til að yfirgefa.
„Hugmyndin að baki tónleikunum var að skapa viðburð þar sem Grindvíkingar gætu komið saman heima fyrir, í kirkjunni,“ segir Gísli. „Mig langaði að deila þessum lögum með þeim – lögum sem ég samdi á þessum tíma sameiginlegs missis og sorgar.“
Að sýningu lokinni mun Gísli Gunnarsson flytja náið órafmagnað sett við áhorfendur, en viðburðurinn markar tímamótin þegar þrjú ár eru liðin frá rýmingu Grindavíkur.

