© 2026 Tix Miðasala
Seltjarnarneskirkja
•
17. október
Miðaverð frá
3.500 kr.




Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
Hljómsveitarstjóri: Oliver Kentish
Einleikari: Andrew J. Yang
Efnisskrá
Pranav Ranjit: Beyond
Sergei Rachmaninoff: Píanókonsert nr. 2
Andrew J. Yang er fæddur og uppalinn í Kaliforníu og útskrifaðist með B.A. í hagfræði og B.M. í píanóleik frá Northwestern háskólanum í
Illinois og mastersgráðu í píanóleik frá Mannes tónlistarskólanum í New York og hlaut hann Steinway & Sons verðlaunin, sem veitt eru framúrskarandi útskriftarnemum.
Hann fluttist til Patreksfjarðar fyrir fimm árum og hefur síðan þá verið áberandi í íslensku tónlistarlífi og vakið athygli sem einn af áhugaverðari píanóleikurum landsins. Andrew er stofnandi og listrænn stjórnandi Reykjavík Pianofest og Alþjóðlegu píanóhátíðar Vestfjarða en
hlaut sú hátíð hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar árið 2023.
Andrew býr núna á höfuðborgarsvæðinu og kennir við Tónskóla Sigursveins og Tónskólann í Reykjavík.
Í tónsmíðum sínum sækir Pranav Ranjit innblástur í upplifun af náttúrunni, ýmsar hefðir þjóðlagatónlistar og andstæður fyllingar og þagnar. Úr þessum ólíku þáttum verður til tónlist þar sem kyrrð og hljóð, hið smáa og hið yfirgripsmikla, mætast og mynda heild.
Ranjit hefur hlotið Eisner-verðlaunin fyrir framlag sitt til skapandi lista en hann hefur stundað nám í Bandaríkjunum, Eistlandi og á Íslandi og var einnig skiptinemi við Sibeliusar-akademíuna í Finnlandi.

