Tvöföld barokkveisla - Sígildir sunnudagar

Harpa

7. mars

Miðaverð frá

2.500 kr.

Strengjasveitin Spiccato og Flygladúóið Sóley sameina krafta sína og efna til tónleika með tveimur tvöföldum konsertum eftir tvö af stærstu tónskáldum barokktímans, Bach og Vivaldi. Að auki hljóma valin verk frá barokktímanum sem löngum hafa verið í uppáhaldi margra og má því búast við sannkallaðri barokkveislu. Þetta er í fyrsta sinn sem þessir tveir hópar vinna saman og munu þeir bæði flytja verk hvor í sínu lagi og saman.

Konsert BWV 1060 er talinn eini konsertinn úr smiðju Bachs sem hann umritaði sjálfur fyrir tvö hljómborð, en hann samdi konsertinn upphaflega fyrir fiðlu og óbó. Ekki er vitað til þess að konsertinn hafi verið fluttur hér á landi áður í þessari hljóðfærasamsetningu og er því mögulega um að ræða frumflutning á Íslandi.

Tvöfaldur konsert Vivaldis verður fluttur af Spiccato strengjum. Árið 1711 kom út safn tólf konserta eftir Vivaldi og konsertinn sem hér hljómar var þar á meðal. Þessar tónsmíðar höfðu umfangsmikil áhrif á tónskáld víða um Evrópu, þar á meðal Bach. Hann varð hugfanginn af tónlistinni og umritaði nokkra af konsertum Vivaldis fyrir ýmis hljómborðshljóðfæri. Konsertinn er dæmigerður fyrir tónlist Vivaldis, fullur af krafti og lífi.

Strengjasveitin Spiccato var stofnuð árið 2012 af hópi strengjaleikara sem vettvangur til að flytja strengjatónverk - ekki síst frá Barokk tímanum - þar sem jafnræði ríkir milli hljóðfæraleikara, enginn einn stjórnar. Á æfingum er skipst á skoðunum um túlkun tónverka og allir fá tækifæri til að koma fram sem einleikarar. Á þeim árum hefur sveitin haldið yfir þrjátíu tónleika, flesta í Reykjavík.

Flygladúóið Sóley var stofnað árið 2019 og er skipað píanóleikurunum Laufeyju Sigrúnu Haraldsdóttur og Sólborgu Valdimarsdóttur. Dúóið hefur haldið tónleika bæði hérlendis og erlendis og hefur haft það að markmiði að flytja og vekja athygli á tónlist fyrir þessa hljóðfæraskipan, ekki síst íslenska tónlist og veita innsýn inn í hinn margbrotna hljóðheim flyglanna. Nokkur íslensk tónskáld hafa samið verk sérstaklega fyrir Flygladúóið, sem hefur flutt þau á ýmsum tónleikum og hefur þannig stuðlað að nýsköpun og fjölbreytni í tónlist fyrir hljóðfærasamsetninguna.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger