Hugar & lúpína

9. október

Miðaverð frá

4.990 kr.

Hljómsveitin Hugar hefur komið víða við. Hljómsveitina skipa Bergur Þórisson, upptökustjóri, og Pétur Jónsson, arkitekt. Í kjölfar mikillar velgengni fyrstu plötu þeirra árið 2014 hafa þeir gefið út fjölda platna, samið tónlist í kvikmyndir og spilað víða um heim. Hljómsveitin hefur undanfarin ár legið í dvala en snýr nú aftur og spilar sína fyrstu tónleika á Íslandi síðan 2023. Þar mun Hugar flytja nýtt efni í bland við gamalt og gott.

lúpína er tónlistarverkefni Nínu Solveigar Andersen, íslensk-norskrar tónlistarkonu sem blandar saman elektrónískum hljóðheimi, draumkenndu poppi og persónulegum textum. Hún steig fyrst fram undir nafninu lúpína árið 2022 og gaf ári síðar út sína fyrstu breiðskífu, ringluð. Platan hlaut góðar viðtökur, var tilnefnd til Kraumsverðlaunanna og tónlist lúpínu hlaut verðlaun fyrir lag ársins á Reykjavík Grapevine Music Awards. Önnur breiðskífa hennar, marglytta, kom út árið 2024 og í kjölfarið hefur lúpína komið fram á tónleikum og hátíðum víða erlendis, meðal annars á Roskilde Festival.

Fyrr á þessu ári gaf lúpína út EP-plötuna Light in the Dark, sem markar nýjan og djarfan kafla í síbreytilegum hljóðheimi hennar. Með hverri útgáfu hefur hlustendahópur hennar haldið áfram að stækka, jafnt hér heima sem erlendis. lúpína er ein af mest spennandi röddum íslenskrar samtímapopptónlistar og allt bendir til þess að þetta sé aðeins byrjunin.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger