SAGA MUSICA – Sagnatónlist innblásin af Íslendingasögunum

Harpa

20. desember

Miðaverð frá

5.000 kr.

SAGA MUSICA er lagabálkur eftir íslenska tónskáldið og lagahöfundinn Valgeir Guðjónsson, þar sem hvert lag sækir íkveikju í sagnaheim norrænnar goðafræði og Íslendingasagnanna.

Efnið er einstakt að því leyti að tónlistin verður sjálf að sögum og opnar þannig fyrir nýja nálgun áheyrenda við bókmenntaarf Íslendinga. Með tónlistinni er leitast við að vekja áhuga og forvitni á sögunum og hvetja til þess að rýna frekar í þær.

Valgeir Guðjónsson samdi textana á ensku en þannig gefst bæði íslenskum og erlendum áheyrendum kostur á að kynnast sögunum í nýju samhengi.

SAGA MUSICA hefur á undanförnum tólf árum að mestu verið flutt fyrir erlenda gesti, einkum á lokuðum viðburðum, en hluti efnisins hefur einnig verið fluttur á opnum tónleikum ásamt öðrum tón- og textasmíðum Valgeirs, meðal annars í samstarfi við Sálmaband Dómkirkjunnar.

Áætluð lengd tónleika: um ein og hálf klukkustund, með hléi

Almennt miðaverð er kr. 5000, en nemendum býðst að kaupa miðann á kr. 3500 í miðasölu Hörpu.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger