Ævintýri í Jólaskógi

Guðmundarlundur í Kópavogi

•

84 viðburðir

Miðaverð frá

4.900 kr.

Ævintýri í Jólaskógi

  Töfrandi vasaljósaganga fyrir alla fjölskylduna í Guðmundarlundi  

  Þegar rökkva tekur, lifnar Jólaskógurinn við.    

  Gestir leggja af stað með vasaljós að vopni inn í dimman og  ævintýralegan skóg þar sem ýmsar furðuverur leynast á milli trjánna. Á  leiðinni verða á vegi þeirra kunnuglegar persónur úr uppáhalds  jólafjölskyldu okkar Íslendinga – Grýla, Leppalúði, jólasveinarnir og  tröllasystkini þeirra.  

  Ævintýri í Jólaskógi er tæplega klukkutíma löng leikhúsupplifun undir  berum himni þar sem áhorfendur ganga í litlum hópum um skóginn í  Guðmundarlundi, vopnaðir vasaljósum. Náttúran, myrkrið og jólaljósin  verða hluti af leiksviðinu og enginn veit alveg hvað bíður handan við  næsta tré.  

  Sýningar hefjast á 10 mínútna fresti og byrja ekki fyrr en farið er að  skyggja. Ferðalagið um skóginn er varðað jólakúlum, luktum og öðru  jólaskrauti sem vísar áhorfendum veginn í gegnum ævintýrið.  

  Eftir stutta göngu kemur hópurinn að fyrsta „sviðinu“ þar sem einn íbúa  Grýluhellis tekur á móti gestum og segir þeim litla jólasögu. Sögurnar  fjalla um ævintýri tröllafjölskyldunnar, lífið í Grýluhelli og jól fyrr  og nú. Hver saga er tæpar tíu mínútur og að henni lokinni heldur  hópurinn áfram inn í skóginn í leit að næsta ævintýri.  

  Alls eru fjögur „svið“ í skóginum og fjórar ólíkar sögur, fluttar af  íbúum Grýluhellis. Ferðalagið tekur tæpan klukkutíma og að því loknu  geta gestir fengið mynd af sér með jólasveini og yljað sér við heitt  kakó og piparkökur.  

  Ævintýri í Jólaskógi 

Nýtt ævintýri á hverju ári Ævintýri í Jólaskógi var fyrst sett upp fyrir jólin 2020 og er þetta því  sjöunda árið sem gestum er boðið í vasaljósagöngu um Guðmundarlund.  

  En þó hefðin sé orðin sjö ára gömul er sýningin ný á hverju ári.    

  Á hverju ári eru samdar nýjar sögur og ný ævintýri bíða gesta í  skóginum. Þeir sem hafa heimsótt Jólaskóginn áður geta því komið aftur  ár eftir ár og aldrei vitað fyrirfram hvað Grýla, Leppalúði,  jólasveinarnir og tröllasystkini þeirra hafa brallað í þetta sinn.  

  Verkið er eftir Önnu Bergljótu Thorarensen og er það hún, ásamt Andreu  Ösp Karlsdóttur, Grímu Kristjánsdóttur, Hafsteini Níelssyni, Hlyni  Þorsteinssyni, Sigsteini Sigurbergssyni, Snædísi Ingadóttur, Sólveigu  Guðmundsdóttur og Stefáni Benedikt Vilhelmssyni, sem bera ábyrgð á því  að jólasveinafjölskyldan skili sem bestu verki.  

  Gott að vita áður en lagt er af stað Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig vel eftir veðri, koma í góðum  skóm og taka með sér vasaljós. Sýningin fer öll fram utandyra og þessi  atriði eru nauðsynleg til að njóta ferðalagsins til hins ýtrasta.  

  Gott að vita áður en lagt er af stað Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig vel eftir veðri, koma í góðum  skóm og taka með sér vasaljós. Sýningin fer öll fram utandyra og þessi  atriði eru nauðsynleg til að njóta ferðalagsins til hins ýtrasta.  

  Frítt er fyrir börn tveggja ára og yngri og því þarf ekki að bóka miða  fyrir þau.  

  Við biðjum gesti að skilja hunda eftir heima, bæði svo þeir trufli ekki  sýninguna og af tillitssemi við aðra gesti.  

  Almennt miðaverð: 4.900 kr. á mann.  

  Klæðið ykkur vel, grípið vasaljósið og komið með okkur inn í  Jólaskóginn.  

Dagsetningar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger