© 2026 Tix Miðasala
•
18. september
Miðaverð frá
5.500 kr.




Pop-Up kokteila kvöld í Krúttinu!
Við bjóðum upp á einstakt kvöld í Krúttinu á Hótel Blönduósi þar sem marg verðlaunuðu barþjónarnir Liv Sunneva Einarsdóttir og Darri Már Magnússon taka yfir barinn og töfra fram gómsæta og spennandi kokteila.
Kvöldið hefst kl. 19:00, þar sem Liv og Darri verða á staðnum og bjóða upp á úrval af kokteilum sem þau hafa sett saman sérstaklega fyrir kvöldið.
Einn kokteill er innifalinn í hverjum miða. Að honum loknum verður opinn bar með úrvali af kokteilum og öðrum drykkjum fram eftir kvöldi.
Frá kl. 20:00 mæta trúbbar af svæðinu og taka við með lifandi tónlist og góðri stemningu út kvöldið.
Komdu og njóttu góðra drykkja, lifandi tónlistar og notalegrar stemningar í Krúttinu á Hótel Blönduósi.
Takmarkað pláss – tryggðu þér miða og vertu með!

