© 2026 Tix Miðasala
Nýlistasafnið
•
9. september
Miðaverð frá
4.990 kr.




Kórinn Kliður og blásarakvartettinn Tu Ha? Tu Bjö! sameina krafta sína á State of the Art 2026. Þessir annars ólíku hópar eiga meira sameiginlegt en margir myndu halda. Báðir eru þeir fjórraddaðir, improvisera og leika nánast einungis frumsamið efni eftir meðlimi sína. Á þessum einstöku tónleikum í Nýlistasafninu mun tónlist þeirra renna saman í eitt í samsöng radda og lúðra. Mannsraddirnar munu opna nýjar víddir fyrir blásarana auk þess sem blásturinn mun styðja við kórinn líkt og pípuorgel með sjálfstæðan vilja. Áhugafólk um samtímatónlist, spuna, ljóðlist og almenna tilraunamennsku ætti ekki að láta þessa forvitnilegu samsetningu fram hjá sér fara!
Tónleikarnir verða 8. október í Nýlistasafninu og hefjast kl 20. Miðaverð er 4.990 kr og miðasala á tix.is Einnig er hægt að næla sér í hátíðarpassa á State of the Art sem veitir aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.
Kórstjórar Kliðs
– Gyða Valtýsdóttir
– Snorri Hallgrímsson
Tu Ha? Tu Bjö!
– Tumi Torfason : trompet
– Hannes Arason : trompet
– Tumi Árnason : tenórsaxófónn
– Björgvin Ragnar Hjálmarsson : tenórsaxófónn
Nánar um Klið
Kliður er kór skipaður listamönnum úr ýmsum áttum sem um nokkurra ára skeið hefur hist vikulega til að syngja saman. Sérstaða kórsins er að hann flytur eingöngu nýja frumsamda tónlist eftir tónskáld innan hópsins, gjarnan við texta eftir rithöfunda innan hópsins. Kliður æfir nú í Aðventistakirkjunni undir stjórn Gyðu Valtýsdóttur og Snorra Hallgrímssonar, en hefur áður haft aðsetur sitt í Iðnó og Mengi. Kórinn fer einnig reglulega í Skálholt í vinnusmiðjur til að þróa ný verk.
Verkin eru afar fjölbreytt, allt frá því að vera samin við sálma, til þjóðlagaskotinna verka til nýklassískra tónsmíða. Tónskáldin mynda áhugavert þversnið af íslensku tónlistarsenunni um þessar mundir, en mörg þeirra eru eftirsótt af sinfóníu- og kammersveitum víða um heim, semja kvikmyndatónlist hér heima og erlendis, auk þess að koma reglulega fram á popp-, rokk- og raftónlistarhátíðum. Frjáls spuni er stór hluti af kórastarfinu og hefur gagnast kórnum bæði sem raddupphitun sem og kveikja að nýjum verkum. Til viðbótar við reglulegt tónleikahald hefur kórinn komið fram á fjölda tónlistarhátíða og vinnur nú að söngbók Kliðs.
Nánar um Tu Ha? Tu Bjö!
Tu Ha? Tu Bjö! er rannsóknar- og tilraunaverkefni fjögurra blásara sem hefur leitt þá um ótroðnar slóðir í tónsmíðum og spuna. Samkomulag milli ólíkra tónskálda en jafnframt ólíkra flytjenda. Útkomunni mætti líkja við fiskitorfu sem syndir um samhæfð og samtaka en jafnframt frjáls og af því er virðist stefnulaus. Hún syndir bæði í grynningunum og í dýpinu, allt frá litríka kóralrifinu niður á myrkann hafsbotninn.
Nú í sumar gaf Tu Ha? Tu Bjö! út breiðskífu sína Tu Ha? Tu Bjö! í samstarfi við Blöðruna sjálfstæða plötuútgáfu. Útgáfunni fögnuðu þeir með djörfum tónleikagestum á Jazzhátíð Reykjavíkur fyrr í haust og munu halda því áfram með tónleikaferðum um landið í vetur. Sveitin heldur áfram að bregða sér í ólík hlutverk í samstarfi við hina ýmsu hópa eins og hún gerir hér með kórnum Klið á tónlistarhátíðinni State of the Art.

