70 ára minningarhátíð-Hátíðardagskrá og hátíðarkvöldverður í Hlégarði

Hlégarður

23. október

Miðaverð frá

3.490 kr.

70 ára minningarhátíð-Hátíðardagskrá og  hátíðarkvöldverður í Hlégarði

Árið 2026 verða liðin 70 ár frá því að ungverska byltingin braust út árið 1956 og ungverskir flóttamenn komu til Íslands. Af því tilefni stendur Ungverska menningarfélagið á Íslandi fyrir sérstökum minningar-, menningar- og fræðsluviðburði í Hlégarði í Mosfellsbæ þann 23. október 2026.

Klukkan 18:00 hefst hátíðleg minningarathöfn með menningardagskrá, ávörpum og tónlist. Að henni lokinni verður boðið upp á hefðbundinn ungverskan hátíðarkvöldverð.

Fram til klukkan 18:00 verður söguleg sýning opin almenningi og aðgangur ókeypis. Þar verða til sýnis ljósmyndir, skjöl, fjölmiðlaefni og persónulegar frásagnir flóttamannanna og afkomenda þeirra. Einnig verður sýnd heimildarmynd sem tengist sögu Ungverja á Íslandi (Skjól í norðrinu).

Hlégarður hefur sérstakt sögulegt gildi þar sem ungversku flóttamennirnir voru fyrst vistaðir þar eftir komuna til Íslands. Markmið viðburðarins er að varðveita þessa mikilvægu sögu, kynna hana fyrir breiðari hópi og miðla henni áfram til komandi kynslóða.

Facebook-síða viðburðarins: https://fb.me/e/6mCR3erVr

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger