Skúli Sverrisson - 60!

Fantasía

6. október

Miðaverð frá

6.900 kr.

Bassaleikarinn Skúli Sverrisson hefur fyrir löngu skapað sér nafn sem einn okkar fremsti tónlistarmaður á sviði djass, spuna og tilraunatónlistar. Hann var búsettur í New York um langt skeið og hefur starfað með listamönnum á borð við Lou Reed, Laurie Anderson, Ryuichi Sakamoto, Allan Holdsworth, Blonde Redhead, Jóhanni Jóhannssyni og Hildi Guðnadóttur. Skúli hóf ferilinn sem bassaleikari í goðsagnakenndum íslenskum hljómsveitum á borð við Pax Vobis og hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar en hefur einnig getið sér gott orð sem tónskáld með einstaka rödd. Hann hefur átt í farsælu samstarfi við nafntogaða einstaklinga í djassheimum, ber þar hæst að nefna rómaðar samstarfsplötur með gítarleikaranum Bill Frisell og saxófónleikaranum Óskari Guðjónssyni. Skúli hefur einnig samið tónlist fyrir kvikmyndir og leikhús, stýrt plötuupptökum, komið fram á hundruðum hljóðrita og fengist við margt fleira innan tónlistargeirans. Skúli er meðal stofnenda Mengis og hefur verið listrænn stjórnandi staðarins frá upphafi.

Skúli fagnar stórafmæli í október og af því tilefni verður hann heiðraður á opnunartónleikum State of the Art. Aðstandendur hátíðarinnar, Magnús Jóhann, Bergur Þórisson og Bjarni Frímann munu fá sér sæti á sviðinu og leika valin lög af ferli Skúla ásamt tónskáldinu sjálfu á bassa. Auk þess kemur söngkonan Ólöf Arnalds við sögu. Það er af ýmsu að taka og aldrei að vita hvort Skúli varpi nýju ljósi á einhver verka sinna. Tónleikarnir fara fram 6. október kl 20, á Fantasíu við Austurstræti. Miðasala er á tix.is en einnig er hægt að næla sér í hátíðarpassa á State of the Art sem veitir aðgang að öllum tónleikum hátíðarinnar.

Hægt er að kynna sér dagskrá hátíðarinnar inná www.stateoftheartfestival.is

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger