© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
16. september
Miðaverð frá
5.200 kr.




Enzo Favata, saxófónar, klarínett og sampler
Sunna Gunnlaugs, píanó
Tvær einstakar raddir mætast í samtali á tónleikum þegar sardínski saxófón- og klarinettuleikarinn Enzo Favata og píanistinn Sunna Gunnlaugs leiða saman hesta sína. Enzo Favata fellir saman jazzspuna og sardínska tónlistarhefð í leik sínum og skapar jafnframt hljóðheim með hjálp loop/sampler. Favata hefur á löngum ferli sínum leikið m.a. með Dino Saluzzi, Miroslav Vitous, Dave Liebman, Enrico Rava, the Art Ensemble of Chicago, Django Bates, Lester Bowie, Flavio Boltro, Michel Marre, Tenores di Bitti og fleirum. Um þessar mundir kemur út hans fyrsta hljóðritun fyrir ECM útgáfuna, Ritornare. Píanistinn Sunnu Gunnlaugs er þekkt fyrir sína lýrísku nálgun á jazzhefðina og á tónleikunum mætast þessar tvær einstöku raddir, hvor frá sinni eyjunni, og skapa einstaka stemningu sem fellir tvo menningarheima í einn. Tónleikarnir eru styrktir af Menningarstofu Ítalíu í Osló.

