© 2026 Tix Miðasala
Íþróttahöllin Akureyri
•
10. október
Sala hefst
4. september 2026, 12:00
(eftir 11 klukkustundir)




Árshátíð Akureyrarbæjar - árshátíðin okkar
Árshátíð Akureyrarbæjar verður haldin laugardaginn 10. október 2026 í Íþróttahöllinni á Akureyri.
Bautinn sér um veislumatinn og þeir Auddi og Steindi halda utan um gleðina sem veislustjórar kvöldsins. Að borðhaldi loknu stígur Babies flokkurinn á svið og sér til þess að dansgólfið verði ekki látið í friði.
Húsið opnar kl. 18:00.
Starfsfólki Akureyrarbæjar er boðið á árshátíðina. Miðaverð fyrir maka er 11.000 kr.
Matseðill kvöldsins
Fordrykkur við komu
Freyðivín og óáfengt freyðivín.
Smáréttir, sushi og snittur
Reykt bleikja á blini með eplasalati og dilli.
Snitta með tómötum og tapenade.
Lax, kryddjurtaostur, paprika, salat og sæt teriyaki-sósa
„Surf & turf“ með humartempura, nautaþynnum, unagi og hvítlauksmajónesi
Mangó, agúrka, graslaukur, chili-majónes og unagi-sósa
Kjúklingakaraage á spjóti með BBQ-sósu, kewpie-majónesi og tsuma
Aðalréttur
Grilluð nautalund í RUB23-kryddblöndu, borin fram með nípumauki, kartöflum, hunangsgljáðum gulrótum, hvítlauksristuðum sveppum og soðsósu.
Eftirréttur
Hvít súkkulaðimús með hindberjum, lakkrís og berjasósu.
Sérfæði og ofnæmi
Þau sem þurfa sérfæði, þar á meðal vegan- eða pescetarian-fæði, eru vinsamlegast beðin um að senda tölvupóst á bautinn@bautinn.is með nafni og upplýsingum um óskir eða ofnæmi.
Þetta verður sannkallað gleðikvöld í the city of joy! Allir út á gólf og enginn heim fyrir tólf!

