© 2026 Tix Miðasala
Austurbæjarbíó
•
16. október
Sala hefst
22. ágúst 2026, 10:00
(eftir 18 klukkustundir)




Þórir Baldursson - Tónlistarheimur í meir en hálfa öld - Gammar & gestir
Þórir Baldursson fagnar löngum og fjölbreyttum tónlistarferli með stórtónleikum í Austurbæjarbíói 16. október. Á tónleikunum leiðir Þórir saman ólíka þræði úr tónlistarheimi sínum, frá jazz-rokki og fusion Gamma til nýrra sönglaga sem orðið hafa til á ferlinum bæði hér heima og erlendis. Með Þóri mun leika Hljómsveitin Gammar, en hana skipa auk Þóris: Stefán S. Stefánsson, Björn Thoroddsen, Bjarni Sveinbjörnsson og Sigfús Óttarsson. Til liðs við sig fá þeir Einar Scheving og Pálma Sigurhjartarson. Um sönginn sjá: Una Stefánsdóttir, Kjalar Marteinsson Kollmar, Stefanía Svavarsdóttir og Geir Ólafsson. Bakraddir syngja: Íris Lind Verudóttir, Ragna Björg Ársælsdóttir og Arna Rún Ómarsdóttir.

