JóiPé & Króli í 10 ár!

Harpa

4. júní

Sala hefst

26. ágúst 2026, 12:00

(eftir 4 daga)

  Fyrir tæpum 10 árum síðan sendi menntaskólanemi úr   Hafnarfirði torskilinn skilaboð á menntaskólanema úr Garðabæ. Tilgangur   skilaboðanna var einfaldur. Hafnfirðingurinn vildi hitta Garðbæinginn.  Hittingurinn tók dágóðan tíma að raungerast en á endanum varð svo að hann átti sér stað. 30. desember 2016 byrjaði nýtt upphaf, nýtt líf fyrir þessa úthverfadrengi. Fimm plötur á þremur árum. 

Örlögin hafa nú teymt þá í Eldborg, Hörpu. 2027 verður stórt ár fyrir unglingana sem skiptust á ómerkilegum skilaboðum fyrir áratug síðan. Vænta má að 6. plata þeirra félaga komi út snemma á næsta ári. 

Þeir þakka samfylgdina og horfa björtum augum til framtíðar. Góðar stundir 

JóaPé & Króla þarf vart að kynna fyrir landsmönnum. Síðan 2017 hafa þeir drengir verið með vinsælustu tónlistarmönnum landsins og þekktir fyrir orkumikla og gríðarlega skemmtilega lifandi framkomu. Lög þeirra hafa slegið hvert metið á eftir öðru í hlustunum, þeir hlotið bæði Hlustenda- og Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir verk sín og svo mætti lengi telja.  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger